| Grétar Magnússon

Andrúmsloftið hefur breyst

Lucas Leiva segir Kenny Dalglish hafi gjörbreytt andrúmsloftinu í búningsherbergi heimaliðsins á Anfield.

Síðan Dalglish tók við hefur liðið náð í 25 stig af 39 mögulegum og Lucas bætist í hóp þeirra leikmanna sem hrósa komu Kóngsins í hástert.

,,Kenny hefur verið mér mjög mikilvægur því hann hefur gefið mér aukið sjálfstraust," sagði Brasilíumaðurinn.  ,,Hann er stjóri sem segir kannski ekki mikið en það sem hann segir er alltaf alveg hárrétt."

,,Andrúmsloftið í búningsherberginu er mjög gott.  Það var ekki svona góður andi í búningsherberginu fyrir komu hans.  Allir leikmennirnir eru samstíga og hlakka mikið til framtíðarinnar.  Eina leiðin til að breyta hlutum til hins betra er að standa allir saman."

,,Kenny er lykillinn að því að allir eru samstíga.  Eitt af því sem mér líkar svo vel við hann er að hann höndlar alla leikmenn á sama máta.  Það skiptir ekki máli hvort maður er ungur eða eldri leikmaður, allir hafa sama mikilvægi fyrir félagið og það blæs öllum baráttuanda í brjóst."

,,Við erum meira samtaka nú.  Samband leikmanna er ekki bara núna á knattspyrnustigi, við erum orðnir meiri vinir en áður og það hjálpar mikið á vellinum.  Þegar manni líkar vel við liðsfélaga sína þá reynir maður að hjálpa þeim eins mikið og maður getur.  Þessi tími hefur verið mjög góður."

Góðir sigrar hafa náðst á Manchester United, Chelsea og Manchester City síðan Dalglish tók við.  Nú þegar aðeins nokkrir leikir eru eftir er liðið fimm stigum á eftir Tottenham en þeir sitja í fimmta sæti deildarinnar.  Í næstsíðustu umferðinni mætast þessi tvö lið á Anfield.

Lucas bætti við:  ,Við erum ennþá að reyna að ná fimmta sæti.  Við vitum að það verður erfitt en við verðum að vinna þá leiki sem við eigum eftir og sjá hvað gerist.  Sem stendur er þetta mjög erfitt því Tottenham eiga leik til góða og eru nú þegar fimm stigum á undan okkur.  Þeir eiga hinsvegar eftir að spila nokkra erfiða leiki og við eigum eftir að mætast.  Við verðum bara að vinna okkar leiki.  Við erum ánægðir með stöðu okkar núna, hún er örugg eins og er en við verðum að halda áfram að berjast og hafa trúna."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan