| Sf. Gutt
TIL BAKA
Luis langar að skora á morgun
Luis Suarez verður tilbúinn í slaginn á morgun þegar Liverpool mætir Manchester United. Hann langar auðvitað að skora í þessum stórleik sem hann hefur heyrt mikið um.
,,Ég veit að, af öllum leikjum á keppnistímabilinu, þá er þetta sá sem bæði lið vilja vinna. Sem knattspyrnumann dreymir mann alltaf um að skora í svona leik og hjálpa liðinu til að vinna. Mér er þó efst í huga að liðið haldi áfram að ná stigum."
Liverpool og Manchester United er stórleikur eins og þeir gerast stærstir í heiminum. Luis hefur ekki áhyggjur af því að spennan í kringum grannaleikinn muni koma honum úr jafnvægi.
,,Ég hef tekið þátt í mörgum grannarimmum í Hollandi, Úrúgvæ og eins með landsliðinu í leikjum gegn Argentínu og Brasilíu og er því mjög rólegur. Ég er vanur að spila í grannaleikjum. Svo eru þetta leikir sem maður vill taka þátt í. Grannaslagur milli tveggja stórliða sem eru að berjast um Evrópusæti. Ég kom hingað til að spila í svona leikjum."

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Goðsagnirnar unnu! -
| Sf. Gutt
Enn fjölgar á Anfield! -
| Sf. Gutt
Góðverk fyrir góðan gest -
| Sf. Gutt
Goðsagnaleikur í uppsiglingu -
| Sf. Gutt
Joe Gomez í landsliðið á nýjan leik -
| Sf. Gutt
Tveir eftir heima -
| Sf. Gutt
Leggjum allt í sölurnar til loka! -
| Sf. Gutt
Sár endir á FA bikarvegferðinni -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar!
Fréttageymslan