| Grétar Magnússon

Ayala lánaður til Derby

Daniel Ayala hefur verið lánaður til Derby County til loka tímabilsins.

Spánverjinn ungi var lánaður til Hull fyrr á leiktíðinni en hefur verið meiddur síðan þá.  Í félagaskiptaglugganum var búið að samþykkja það að Ayala gengi til liðs við Derby en vegna meiðsla hans vildu Derby bíða með lánið.

Derby eru í baráttu um að komast í umspil um sæti í Úrvalsdeild í vor og Ayala verður fenginn til að styrkja vörnina í þeirri baráttu.

Nigel Clough, stjóri Derby sagði af þessu tilefni:  ,,Ég vil þakka Kenny Dalglish og Liverpool fyrir að hafa ákveðið að Derby County er besti staðurinn fyrir Daniel á þessu stigi ferils hans."

Ayala kom til Liverpool árið 2007 frá Sevilla og hefur komið fimm sinnum við sögu hjá aðalliðinu.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan