| Grétar Magnússon
Roy Hodgson hefur gagnrýnt meðferð Hull City á Daniel Ayala en Spánverjinn er kominn til baka úr láni hjá fyrstu deildar félaginu vegna meiðsla.
Liverpool vildu fá Ayala strax aftur á Melwood þegar ljóst var að hann var meiddur svo að hann gæti jafnað sig og verið inní myndinni hjá Hogdson vegna meiðsla Jamie Carragher. Hull neituðu þessu og það varð til þess að meiðsli Ayala, sem tognaði aftan í læri, versnuðu til muna.
Hodgson sagði í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins: ,,Við erum vonsviknir með Hull City. Ég var vonsvikinn að lesa það að hann myndi snúa aftur til okkar vegna meiðsla, þegar staðreyndin er sú að við vorum ekki tilbúnir til að lána hann áfram til Hull."
,,Við vildum fá hann til baka síðustu þrjár vikurnar af árinu til að koma honum í form, vegna þess að hann var ekki í 100% leikformi hjá þeim, við vildum nota hann þar sem Carragher er meiddur. Hull neituðu og sögðu að hann væri með lánssamning til 1. janúar og að þeir vildu ekki láta hann fara fyrir þann tíma."
,,Við sögðum þá við þá að þeir gætu gleymt því að fá hann á láni eftir áramótin. Við hefðum gert þeim mikinn greiða með því að lána hann til þeirra svo lengi og við trúðum því ekki að þeir hefðu neitað okkur um að fá hann til baka þegar við þurftum virkilega á honum að halda."
,,Eftir að Hull hafði svo neitað okkur vildum við að minnsta kosti fá hann til baka um leið og hann yrði góður af meiðslunum, sem leit út fyrir að væri um miðjan desember. Þeir neituðu því líka og sú meðferð sem hann fékk hjá þeim gerði meiðslin aðeins verri."
,,Starfsmenn okkar í sjúkrateyminu vilja meina það að hann hefði orðið góður af meiðslunum 15. eða 16. desember en nú er hann ekki orðin klár fyrr en í lok janúar vegna þess að meiðslin urðu aðeins verri við þá meðferð sem hann fékk hjá Hull City."
Ayala er, eins og áður sagði, kominn aftur á Melwood þar sem hann jafnar sig af meiðslunum, ekki er þó útilokað að hann verði lánaður aftur út í janúar.
Hodgson bætti við: ,,Þetta veltur mikið á því hvernig við erum staddir með miðverðina. Sá möguleiki er fyrir hendi að við lánum hann aftur ef við teljum okkur ekki þurfa á honum að halda, en hann fer ekki aftur til Hull City.
Ayala spilaði alls 12 leiki með Hull og skoraði eitt mark.
TIL BAKA
Hodgson ekki ánægður með Hull City
Roy Hodgson hefur gagnrýnt meðferð Hull City á Daniel Ayala en Spánverjinn er kominn til baka úr láni hjá fyrstu deildar félaginu vegna meiðsla.Liverpool vildu fá Ayala strax aftur á Melwood þegar ljóst var að hann var meiddur svo að hann gæti jafnað sig og verið inní myndinni hjá Hogdson vegna meiðsla Jamie Carragher. Hull neituðu þessu og það varð til þess að meiðsli Ayala, sem tognaði aftan í læri, versnuðu til muna.
Hodgson sagði í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins: ,,Við erum vonsviknir með Hull City. Ég var vonsvikinn að lesa það að hann myndi snúa aftur til okkar vegna meiðsla, þegar staðreyndin er sú að við vorum ekki tilbúnir til að lána hann áfram til Hull."
,,Við vildum fá hann til baka síðustu þrjár vikurnar af árinu til að koma honum í form, vegna þess að hann var ekki í 100% leikformi hjá þeim, við vildum nota hann þar sem Carragher er meiddur. Hull neituðu og sögðu að hann væri með lánssamning til 1. janúar og að þeir vildu ekki láta hann fara fyrir þann tíma."
,,Við sögðum þá við þá að þeir gætu gleymt því að fá hann á láni eftir áramótin. Við hefðum gert þeim mikinn greiða með því að lána hann til þeirra svo lengi og við trúðum því ekki að þeir hefðu neitað okkur um að fá hann til baka þegar við þurftum virkilega á honum að halda."
,,Eftir að Hull hafði svo neitað okkur vildum við að minnsta kosti fá hann til baka um leið og hann yrði góður af meiðslunum, sem leit út fyrir að væri um miðjan desember. Þeir neituðu því líka og sú meðferð sem hann fékk hjá þeim gerði meiðslin aðeins verri."
,,Starfsmenn okkar í sjúkrateyminu vilja meina það að hann hefði orðið góður af meiðslunum 15. eða 16. desember en nú er hann ekki orðin klár fyrr en í lok janúar vegna þess að meiðslin urðu aðeins verri við þá meðferð sem hann fékk hjá Hull City."
Ayala er, eins og áður sagði, kominn aftur á Melwood þar sem hann jafnar sig af meiðslunum, ekki er þó útilokað að hann verði lánaður aftur út í janúar.
Hodgson bætti við: ,,Þetta veltur mikið á því hvernig við erum staddir með miðverðina. Sá möguleiki er fyrir hendi að við lánum hann aftur ef við teljum okkur ekki þurfa á honum að halda, en hann fer ekki aftur til Hull City.
Ayala spilaði alls 12 leiki með Hull og skoraði eitt mark.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

