| Sf. Gutt

Daniel kominn heim til Liverpool

Daniel Ayala er kominn heim til Liverpool eftir að hafa verið í láni hjá Hull City frá því í sumar. Hann átti að vera þar til áramóta en varð fyrir meiðslum sem verða skoðuð á Melwood.

Það má vera að spænski strákurinn fari aftur í lán eftir að meiðslin hafa verið greind því mikill áhugi er á því, í herbúðum Hull, að fá hann að láni út keppnistímabilið. Daniel lék sem miðvörður hjá Hull og þótti standa sig mjög vel. Hann tók þátt í 12 leikjum og skoraði eitt mark á lánstímanum. Hann hefur leikið fimm leiki með Liverpool.






TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan