| Sf. Gutt
Charles Itandje fer frá Liverpool núna um áramótin. Franski markmaðurinn hefur verið lengi á launaskrá án þess að spila en nú er komið að því að hann fari á braut. Slíkt er auðvitað gott fyrir launareikning félagsins enda lítið vit í að borga leikmönnum kaup sem aldrei spila og gera þannig ekkert gagn.
Charles mun fara til Grikklands þar sem hann hefur gert samning við Atromitos og tekur samningurinn gildi á nýársdag. Samningurinn gildir í tvö og hálft ár.
Charles Itandje kom til Liverpool frá franska liðinu Lens sumarið 2007. Hann lék alls sjö leiki með Liverpool. Hann var nú ekki sannfærandi í þessum leikjum og fékk á sig átta mörk. Reyndar voru þetta allt bikarleikir og vörn liðsins var gjarnan mikið breytt í þeim leikjum frá deildarleikjum.
Leikina sjö lék Charles á leiktíðinni 2007/08 og alla tíð síðan hefur hann verið á kaupi án þess að spila og það ekki einu sinni með varaliðinu!
TIL BAKA
Charles Itandje yfirgefur Liverpool
Charles Itandje fer frá Liverpool núna um áramótin. Franski markmaðurinn hefur verið lengi á launaskrá án þess að spila en nú er komið að því að hann fari á braut. Slíkt er auðvitað gott fyrir launareikning félagsins enda lítið vit í að borga leikmönnum kaup sem aldrei spila og gera þannig ekkert gagn. Charles mun fara til Grikklands þar sem hann hefur gert samning við Atromitos og tekur samningurinn gildi á nýársdag. Samningurinn gildir í tvö og hálft ár.
Charles Itandje kom til Liverpool frá franska liðinu Lens sumarið 2007. Hann lék alls sjö leiki með Liverpool. Hann var nú ekki sannfærandi í þessum leikjum og fékk á sig átta mörk. Reyndar voru þetta allt bikarleikir og vörn liðsins var gjarnan mikið breytt í þeim leikjum frá deildarleikjum.
Leikina sjö lék Charles á leiktíðinni 2007/08 og alla tíð síðan hefur hann verið á kaupi án þess að spila og það ekki einu sinni með varaliðinu!
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

