| Sf. Gutt
Tilkynnt hefur verið að Tom Warner muni taka við sem stjórnarformaður Liverpool F.C. þann 1. desember. Um leið yfirgefur Martin Broughton félagið.
Tom, sem er hér lengst til vinstri á meðfylgjandi mynd, er stjórnarformaður New England Sports Ventures. Hann hafði þetta að segja um sitt nýja hlutverk á Liverpoolfc.tv.
,,Það er mér mikill heiður að taka við, af Martin, sem stjórnarformaður þessa mikla félags. Við höfum hér sérlega góðan grunn til að byggja á. Bæði á þessu keppnistímabili og til lengri tíma."
,,Markmið okkar er að vinna hvíldarlaust fyrir stuðningsmenn okkar að því að skapa sem bestar aðstæður til að byggja upp sigursælt lið sem skilar bikurum í bikaraherbergið."
John Henry eigandi Liverpool, sem er hér lengst til hægri, telur Tom Warner rétta manninn til að leiða stjórn Liverpool.
,,Það gleður mig mikið að Tom hafi samþykkt að taka við sem stjórnarformaður. Þetta er gríðarlega mikilvægt starf núna þegar við förum að færa okkur fram á veginn. Það er enginn betur til þess fallinn en Tom að taka við stjórnartaumunum og hann mun veita okkur leiðsögn og gefa okkur framtíðarsýn á komandi árum."
TIL BAKA
Tom Werner verður stjórnarformaður
Tilkynnt hefur verið að Tom Warner muni taka við sem stjórnarformaður Liverpool F.C. þann 1. desember. Um leið yfirgefur Martin Broughton félagið. Tom, sem er hér lengst til vinstri á meðfylgjandi mynd, er stjórnarformaður New England Sports Ventures. Hann hafði þetta að segja um sitt nýja hlutverk á Liverpoolfc.tv.
,,Það er mér mikill heiður að taka við, af Martin, sem stjórnarformaður þessa mikla félags. Við höfum hér sérlega góðan grunn til að byggja á. Bæði á þessu keppnistímabili og til lengri tíma."
,,Markmið okkar er að vinna hvíldarlaust fyrir stuðningsmenn okkar að því að skapa sem bestar aðstæður til að byggja upp sigursælt lið sem skilar bikurum í bikaraherbergið."
John Henry eigandi Liverpool, sem er hér lengst til hægri, telur Tom Warner rétta manninn til að leiða stjórn Liverpool.
,,Það gleður mig mikið að Tom hafi samþykkt að taka við sem stjórnarformaður. Þetta er gríðarlega mikilvægt starf núna þegar við förum að færa okkur fram á veginn. Það er enginn betur til þess fallinn en Tom að taka við stjórnartaumunum og hann mun veita okkur leiðsögn og gefa okkur framtíðarsýn á komandi árum."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

