| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
City undirbýr boð í Torres
Manchester City mun ætla að nýta sér ástandið í herbúðum Liverpool til að lokka Fernando Torres yfir til sín í janúar.
Það er Liverpool Daily Post sem greinir frá þessum áformum Manchester liðsins í dag, en eins og kunnugt er hefur City lengi haft hug á því að fá Torres til sín.
Í frétt blaðsins er fullyrt að Roberto Mancini og félagar muni ekki einungis reyna að sannfæra Torres um að meiri möguleikar séu á að krækja í einhver verðlaun hjá Manchester City en hjá Liverpool, sem virðist því miður vera staðreynd í dag, heldur muni liðið einnig bjóða Spánverjanum talsvert hærri laun en hann hefur hjá Liverpool.
Það er því ljóst að nýrra eigenda bíður það krefjandi verkefni að sannfæra þennan snjalla framherja um að vera um kyrrt í herbúðum Liverpool, þrátt fyrir að fátt gangi liðinu í vil þessa dagana.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Goðsagnirnar unnu! -
| Sf. Gutt
Enn fjölgar á Anfield! -
| Sf. Gutt
Góðverk fyrir góðan gest -
| Sf. Gutt
Goðsagnaleikur í uppsiglingu -
| Sf. Gutt
Joe Gomez í landsliðið á nýjan leik -
| Sf. Gutt
Tveir eftir heima -
| Sf. Gutt
Leggjum allt í sölurnar til loka! -
| Sf. Gutt
Sár endir á FA bikarvegferðinni -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar!
Fréttageymslan