| Grétar Magnússon

Tap gegn West Ham

Varalið Liverpool tapaði í kvöld gegn West Ham á heimavelli 1-0.  Athygli vakti að Ryan Babel spilaði allan leikinn.

Varaliðið var meira með boltann í leiknum en leikmenn geta nagað sig í handarbökin yfir því að hafa ekki nýtt þau færi sem gáfust.  Það var svo Benni McCarthy sem skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 79. mínútu.  Liðið er nú með fimm stig eftir fimm leiki í deildinni og staða liðsins minnir óneitanlega á stöðu aðalliðsins.

Ryan Babel var teflt fram í sókninni og hann byrjaði af krafti með því að fá aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan vítateig West Ham.  Dani Pacheco tók spyrnuna og Babel skallaði boltann yfir markið úr ákjósanlegu færi.

Fátt markvert gerðist svo fyrr en eftir hálftíma leik þegar sending frá Irwin hleypti Pacheco í góða stöðu, hann sendi boltann inní teig á Tom Ince sem reyndi að leggja boltann aftur fyrir sig en varnarmaður hamranna hreinsaði boltann frá.  Uppúr hornspyrnunni átti svo Irwin skot sem Boffin í marki West Ham varði við nærstöngina.

David Amoo kom svo inná á hægri kantinn í síðari hálfleik er John McMahon reyndi að hressa uppá sóknarleikinn.  Amoo kom ferskur inn og á 52. mínútu plataði hann varnarmann og sendi boltann á Nathan Eccleston sem átti flott skot rétt framhjá markinu.  Pacheco komst svo inní sendingu og skaut strax að marki en boltinn fór rétt yfir þverslána.

West Ham menn beittu að mestu skyndisóknum og komst Benni McCarthy í gott færi á markteig en hann þrumaði boltanum vel yfir markið.  Allt leit út fyrir að eitt mark myndi duga til að vinna leikinn og komst Babel nálægt því að skora er hann reyndi að fylgja eftir skoti frá Amoo en Boffin markvörður náði boltanum rétt við fætur Hollendingsins.  Jack Robinson gerði svo vel á vinstri kanti er hann kom boltanum fyrir á Eccleston en sá síðarnefndi skaut föstu skoti yfir.

Eina mark leiksins leit svo dagsins ljós á 79. mínútu eins og fyrr sagði, þegar Robinson var talinn hafa handleikið knöttinn innan vítateigs.  Benni McCarthy skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni og tryggði þar með sínum mönnum sigurinn í leiknum.

Varalið Liverpool:  Jones, Flanagan, Robinson, Darby, Coady, Irwin, Spearing, Ince (Amoo 46. mín.), Pacheco, Eccleston og Babel.  Ónotaðir varamenn:  Hansen, Roberts, Bruna og Suso.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan