Forsíða

Frétt

31.08.2010 22:08 | Sf. Gutt

Emiliano Insua fer í lán

Emiliano Insua var í dag lánaður til Tyrklands. Ekki tókst að selja hann en hann verður að minnsta kosti ekki með Liverpool á þessari leiktíð. Argentínumaðurinn gerði lánssamning við stórlið Galatasaray.
 
Allt leit út fyrir að Emiliano færi til Fiorentina fyrr í sumar og var félagið búið að gera kaupsamning við Liverpool. Þegar til kom vildi Emiliano meira kaup og því varð ekki af því að hann færi til Ítalíu. Hann lék ekki opinberan leik með Liverpool á þessu keppnistímabili en var fastamaður á því síðasta. Ekki er víst að Emiliano spili aftur með Liverpool en við sjáum hvað setur í þeim efnum.



















Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin