L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
31.08.2010 22:08
|
Sf. Gutt
Samið við tvo ungliða
Liverpool tilkynnti í dag að samið hefði verið við tvo ungliða. Þeir þykja að sjálfsögðu ungir og efnilegir.
Sá fyrri, sem um ræðir, er Portúgalinn Jesus Joaquin Fernandez Saenz De La Torre sem jafnan er kallaður Suso. Hann kemur frá Cadiz. Suso er fljótur og leikinn sóknarmaður og þykir gríðarlegt efni. Einhverjir hafa meira að segja gengið svo langt að telja hann mesta efni frá Portúgal frá því Cristiano Ronaldo kom þaðan. Suso hefur verið hjá Liverpool síðustu mánuði og kom inn á sem varamaður í æfingaleiknum við Borussia Moenchengladbach fyrr í sumar.
Hinn ungliðinn er Ungverjinn Adam Hajdu. Hann kemur frá MTK Budapest og gerði samning við Liverpool sem gildir til næsta sumars. Adam hefur leikið með yngri landsliðum Ungverja.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir