Forsíða

Frétt

28.08.2010 23:08 | Sf. Gutt

Liverpool kaupir Raul Meireles!

Í kvöld var staðfest að Liverpool hefði fest kaup á portúgalska landsliðsmanninn Raul Meireles frá Porto. Talið er að Liverpool hafi borgað um tíu milljónir sterlingspunda fyrir Raul. Hann þykir mjög sterkur miðjumaður, snjall í spili auk þess að skora af og til.  

Raul hefur leikið með Porto síðustu árin og verið lykilmaður í liðinu. Hann varð landsmeistari með Porto frá 2006 til 2009. Auk þess varð hann þrívegis bikarmeistari með liðinu. Raul kom til Porto frá Boavista en ferill hans hófst hjá Aves.
 
Raul, sem er fæddur 17. mars 1983, hefur verið fastamaður í postúgalska landsliðinu síðustu árin. Hann lék alla leiki Portúgals í Heimsmeistarakeppninni í Suður Afríku og skoraði eitt mark.

Raul hafði þetta að segja þegar vistaskipti hans voru frágengin. ,,Roy Hodgson lék lykilhlutverk í því að ég kom hingað því hann sýndi mér mikinn áhuga og vann hart að því fá mig. Ég er Meireles en ekki Mascherano og stuðningsmennirnir verða að átta sig á því. Ég vona að stuðningsmenn Liverpool muni einn góðan veðurdag minnast mín sem leikmanns sem naut velgengni hjá félaginu.”
 
Segjast verður að þessi kaup koma nokkuð á óvart. Vissulega er Javier Mascherano á förum en búið var að kaupa Danann Christian Poulsen. Kannski verða aðrir miðjumenn en Javier seldir fyrir mánaðamótin. Lucas Leiva hefur verið nefndur í þeim efnum.

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin