27.08.2010 22:08 | Sf. Gutt
Ykkar skoðun
Af nýliðum Liverpool hefur Joe Cole vakið mesta athygli. Miklar vonir eru bundnar við þennan spræka leikmann en eftir er að sjá hvernig honum á eftir að ganga að standast þær væntingar sem eru gerðar til hans. Við könnuðum álit ykkar lesenda Liverpool.is.
Í ljós kom að miklil bjartsýni er ríkjandi um að Joe eigi eftir að vegna mjög vel hjá Liverpool. Rúmlega 80 af hundraði telja að Joe eigi eftir að fara á kostum hjá Liverpool og vonandi á sú spá eftir að rætast. Nokkur hluti er ekki viss um hvernig Lundúnabúanum á eftir að ganga norður í landi. En hvernig sem allt þróast þá er Joe strax orðinn vinsæll meðal stuðningsmanna Liverpool og það þrátt fyrir útafrekstur og vítaspyrnumissi á fyrstu vikum sínum hjá nýja félaginu!

Hann á eftir að blómstra! 82%
Ég er ekki viss. 14%
Hann á ekki eftir að reynast vel. 4%
Greidd og gild atkvæði voru 1952.
Til baka