Dregið í riðla Evrópudeildarinnar UPPFÆRT
Liverpool dróst í K-riðil með Steaua Bucharest, Napoli og Utrecht í Evrópudeildinni en dregið var í hádeginu í dag.Leikdagar í riðlakeppninni eru 16. og 30. september, 21. október, 4. nóvember, 1. eða 2. og 15. eða 16. desember.
Athyglisvert er að Liverpool hefur aldrei mætt Napoli eða Utrecht áður í Evrópukeppni en með Napoli spilar Andrea Dossena og markvarðaþjálfarinn John Achterberg hefur tengsl við hollenska félagið.
Liverpool og Steaua hafa hinsvegar mæst áður, tímabilið 2003-2004 í 2. umferð UEFA keppninnar þar sem Liverpool unnu samanlagt 2-1. Djimi Traore skoraði mikilvægt útivallarmark í Rúmeníu áður en Harry Kewell tryggði 1-0 sigur á Anfield.
Liverpool hefur leik í riðlinum á heimavelli gegn Steaua Búkarest þann 16. september. Hér fyrir neða má sjá leiki liðsins í riðlinum:
Leikir Liverpool í K-riðli
Fimmtudagur, 16. september: Liverpool - Steaua Bucharest. Kl. 19.05.
Fimmtudagur, 30. september: Utrecht - Liverpool. Kl. 17:00.
Fimmtudagur, 21. október: Napoli - Liverpool. Kl. 18:00.
Fimmtudagur, 4. nóvember: Liverpool - Napoli. Kl 19.05.
Fimmtudagur, 2. desember Steaua Bucharest - Liverpool. Kl. 18:00.
Miðvikudagur, 15. desember Liverpool - Utrecht. Kl. 20:05.
Drátturinn í heild sinni er svona:
A riðill: Juventus, Manchester City, FC Salzburg, Lech Poznan
B riðill: Atletico Madrid, Bayer Leverkusen, Rosenborg, Aris Thessaloniki FC
C riðill: Sporting Lisbon, Lille, Levski Sofia, Gent
D riðill: Villarreal, Club Brugge, Dinamo Zagreb, PAOK
E riðill: AZ Alkmaar, Dynamo Kiev, FC Bate, FC Sheriff
F riðill: CSKA Moscow, Palermo, Sparta Prague, Lausanne
G riðill: Zenit St Petersburg, Anderlecht, AEK Athens, Hadjuk Split
H riðill: VFB Stuttgart, Getafe, Odense BK, Young Boys
I riðill: PSV Eindhoven, Sampdoria, FC Metalist Kharkviv, Debrecen
J riðill: Sevilla, Paris St Germain, Borussia Dortmund, FC Karpaty Lviv
K riðill: Liverpool, Steaua Bucharest, Napoli, Utrecht
L riðill: FC Porto, Besiktas, CSKA Sofia, Rapid Vienna
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

