L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
27.07.2010 22:07
|
Heimir Eyvindarson
Maxi á leið til Espanyol?
Maxi Rodriguez gæti verið á förum frá Liverpool, ef marka má fréttir frá Spáni í dag.
Katalónska blaðið El Mundo Deportivo greinir frá
því í dag að Liverpool eigi í viðræðum við Espanyol um hugsanleg kaup á Maxi. Í frétt blaðsins er fullyrt að Roy Hodgson hafi tilkynnt Argentínumanninum að hann sé ekki í framtíðarplönum félagsins og því muni félagið reyna að losa sig við hann.
Maxi kom til Liverpool frá Atletico Madrid fyrir hálfu ári síðan og á þrjú og hálft ár eftir af samningi sínum við félagið. Hann er ekki ókunnur Espanyol, en hann lék með félaginu í þrjú ár, 2002-2005.
Espanyol mun fyrst og fremst vilja fá Argentínumanninn að láni, en samkvæmt heimildum El Mundo Deportivo hefur Liverpool engan áhuga á slíkum viðskiptum, enda þarf félagið á peningum að halda til að styrkja liðið enn frekar fyrir komandi tímabil.
Samkvæmt heimildum spænska blaðsins eru samningar milli félaganna nánast í höfn, það hefur þó ekki fengist staðfest. Fari svo að Maxi yfirgefi Liverpool er allt útlit fyrir að enginn Argentínumaður verði í herbúðum félagsins á næstu leiktíð, en Emilio Insua er þegar farinn og Javier Mascherano er á förum.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir