| Ólafur Haukur Tómasson

Ungstirnin vonast eftir tækifærum

Roy Hodgson fékk tækifæri til að líta vel á nokkra unga leikmenn Liverpool þegar þeir dvöldu í æfingabúðum í Sviss og léku í kjölfarið tvo æfingaleiki. Hodgson segist hafa gjarnan viljað hafa aðalliðsleikmenn sína í búðunum en engu að síður er hann ánægður með það sem að yngri strákarnir hafa sýnt á þessum tíma og hefur hrósað þeim í hástert með þá vinnu sem þeir hafa lagt á sig.

Leikmennirnir eru líka ánægðir með tímann í æfingabúðunum og stefna þeir nú á því að vinna sér inn sæti í aðalliðshópnum og fá sín fyrstu, eða fleiri, tækifæri á næstu leiktíð. Einn þeirra er finnski framherjinn Lauri Dalla Valle.

"Allt liðið lagði mikið á sig. Við höfum mjög ungt lið og mættum sterku liði sem leikur í Bundesligunni. Mér finnst við geta verið ánægður með frammistöðuna. Ég hef lært mikið í þessum æfingabúðum. Það hefur verið mjög erfitt en ég held ég hafi bætt mig. Nú er markmið mitt að fá fleiri mínútur með aðalliðinu, vonandi get ég gert það á þessari leiktíð." sagði Dalla Valle.

Sóknarmaðurinn Nathan Eccleston, sem er hér á mynd, spilaði tvo leiki með aðalliðinu á síðustu leiktíð og hefur staðið sig mjög vel í æfingaleikjunum hingað til vonast einnig til að fá sín tækifæri á komandi leiktíð.

"Við erum allir að reyna að heilla nýja stjórann og margir af okkur eru ný andlit svo við erum allir á sömu blaðsíðunni. Við höfum lagt hart að okkur á æfingum. Báðir leikirnir hafa verið erfiðir því aðalliðsboltinn er allt öðruvísi en hjá varaliðinu. Ég upplifiði smjörþefinn af aðalliðinu á síðustu leiktíð og vil fá fleiri tækifæri í ár.

Vonandi ef ég get æft daglega með aðalliðinu þá mun ég kannski fá að spila einn og einn leik. Það yfir fullkomið fyrir mig."

Einn af þeim sem hefur vakið hvað mesta athygli er vængmaðurinn David Amoo, sem hefur sýnt lipra takta á hægri kantinum í æfingaleikjunum, er ánægður með komu Roy Hodgson og segir alla ánægða með hann.

"Roy Hodgson hefur komið inn og hann hefur verið frábær. Hann hefur gefið okkur mikið sjálfstraust og allir eru ánægðir."

Roy Hodgson hrósaði leikmönnum eins og Nathan Eccleston, Martin Kelly, Daniel Ayala, David Amoo og Jay Spearing eftir leikinn gegn Kaiserslautern og gaf í skyn að þeir muni vera í aðalliðshópnum á næstu leiktíð. Vonandi eru næstu uppöldu stórstjörnur Liverpool þar á ferðinni.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan