Forsíða

Frétt

26.07.2010 21:07 | Ólafur Haukur Tómasson

Jova sáttur með treyjuskiptin

Milan Jovanovic var gefið treyja númer tíu í kjölfar þess að hann var orðinn leikmaður Liverpool en skömmu síðar var greint frá því að tían hafði fallið í hendurnar á Joe Cole, sem kom til félagins skömmu eftir að númerið var gefið til Jovanovic. Jovanovic var í staðinn gefin treyja númer fjórtán, sem Xabi Alonso klæddist á sínum tíma hjá Liverpool, og er hann ánægður með það enda hans uppáhalds númer.

"Að skipta um treyju angraði mig ekki. Númer fjórtán er uppáhaldið mitt og það er númerið sem ég klæðist þegar ég spila með landsliðinu. Mér finnst gott að ég hafi sama númer hér og vona að það muni færa mér gæfu. Ég vona að það muni færa mér árangur. Þegar skiptin gengu í gegn var ég ánægður." sagði Jovanovic.

Jovanovic er framherji að upplagi en kemur að öllum líkindum til með að spila á vinstri kantinum hjá Liverpool og spilaði hann í þeirri stöðu þegar Liverpool mætti Kaiserslautern um síðastliðna helgi. Hann er er alveg til í að spila á kantinum og er reiðubúinn að spila hvar sem er.

"Það skiptir ekki hvaða stöðu ég spila. Það er bara spurning fyrir þjálfaran. Auðvitað þá hef ég mínar eigin skoðanir en það verður ekkert vandamál ef ég spila á vinstri vængnum aftur. Kannski eftir smá tíma og þegar ég læri öll smáatriðin sem fylgja þessari stöðu þá mun það hjálpa mér.

Aðal málið fyrir mig í augnablikinu er að fá tilfinninguna fyrir liðinu. Það er ekki auðvelt því allt er nýtt og við höfum ekki mikinn tíma. En ég mun leggja mig allan fram. Ég verð að nýta hverja mínútu og hvert tækifæri hjá Liverpool til að sýna það að ég eigi skilið að vera hér.

Það er ekki auðvelt að spila fyrsta leikinn sinn eftir Heimsmeistaramótið. En það er allt í lagi því ég mun alltaf reyna að gera mitt besta og leggja mig allan fram á æfingasvæðinu. Ég vona að ég muni verða betri og betri og eftir einn mánuð þá mun það ekki vera vandamál."

Jovanovic mun líklegast spila sinn fyrsta alvöru leik með Liverpool á fimmtudaginn þegar Liverpool mætir Rabotnicki í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin