Forsíða

Frétt

26.07.2010 21:07 | Ólafur Haukur Tómasson

Kveðja frá Albert Riera

Albert Riera gekk í raðir Olympiacos nú á dögunum eftir að hafa verið tvær leiktíðir í herbúðum Liverpool. Hann ákvað að senda stuðningsmönnum Liverpool kveðjubréf þar sem hann þakkar stuðninginn sem hann fékk á þeim tíma. Bréfið er svo hljóðandi:

Kæru stuðningsmenn Liverpool,

Ég vil kveðja og þakka ykkur fyrir tækifærið til að fá að spila í þessu frábæra félagi. Ég myndi vilja þakka stuðningsmönnunum fyrir stuðninginn, þið eruð ótrúleg. Ég vil einnig þakka starfsliðinu og liðsfélögum mínum.

Ég vil óska félaginu alls hins besta á komandi leiktíð, ég sé að það eru margar breytingar að eiga sér stað og það kemur eins og nýr andblær í félagið. Ég held að félagið muni eiga mjög glæsta framtíð.

Ég vil að stuðningsmennirnir minnist mín sem leikmanns sem reyndi að gera sitt besta. Fyrsta árið mitt var ein besta leiktíðin og það næsta sem félagið hefur komist að vinna Úrvalsdeildina. Síðasta leiktíð var eitthvað sem allir ættu að reyna að gleyma, það getur hent öll félög. Í fótbolta er mikilvægt að horfa til framtíðar og gleyma fortíðinni.

Mér fannst tími til kominn á breytingu og ég hlakka nú til nýju áskoranna sem bíða mín.

Með kærri kveðju,
Albert Riera

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin