| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Carra á von á að spila með Nando í vetur
Jamie Carragher segist halda að Fernando Torres verði áfram í herbúðum Liverpool.

Í viðtali við ZOO Magazine segir varafyrirliðinn að hann eigi von á því að Torres verði áfram hjá Liverpool, þrátt fyrir stöðugar fréttir af áhuga annarra liða á því að tryggja sér þjónustu Spánverjans snjalla.
Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Torres á Bretlandi og varla hefur verið hægt að opna þar blað eða netmiðil án þess að rekast á vangaveltur um íverustað hans næsta vetur. Í dag staðfesti Roberto Mancini stjóri Manchester City áhuga City manna á að krækja í Torres, en áður hafði Chelsea borið víurnar í kappann.
Torres er sjálfur í fríi með óléttri konu sinni og kemur ekki til baka á Melwood fyrr en 2. ágúst. Hann og félagi hans í spænska landsliðinu, Pepe Reina, ásamt Hollendingunum Kuyt og Babel fengu heldur lengra frí en aðrir leikmenn Liverpool vegna þátttöku sinnar í úrslitaleik HM.
Kenny Dalglish lét hafa það eftir sér fyrir stuttu að hann ætti von á því að Torres færi hvergi og Jamie Carragher býst fastlega við því að spila með Fernando næsta vetur.
,,Það hefur mikið verið skrafað um það að Fernando muni fara frá félaginu. Ég á ekki von á því að hann vilji fara. Honum líður vel hérna og ég býst við að hann vilji hjálpa til við að rífa klúbbinn upp. Umræðan um okkur hefur verið frekar neikvæð að undanförnu og menn hafa verið að gera því skóna að flestir okkar bestu leikmenn séu á förum. Ég held að það verði ekki raunin. Ég býst við að Steven Gerrard verði hérna áfram og vona að Torres verði hérna líka næsta vetur. Ef þeir verða hérna báðir þá getum við komið félaginu á réttan kjöl eftir vonbrigði síðasta tímabils."
,,Það er okkur gríðarlega mikilvægt að halda í okkar bestu menn. Við erum ekki í sömu stöðu og sum önnur félög, eins og t.d. Real Madrid og Inter. Ef þeir vinna ekki titla þá er bara keypt nýtt lið. Við einfaldlega getum það ekki. Þess vegna verðum við að byggja á því sem við höfum og vinna okkur út úr vandanum í rólegheitum. Við þurfum að bæta margt í okkar leik og ég held að það sé ekki raunhæft að hugsa of mikið um titilinn næsta vetur. Okkar markmið hlýtur að vera að komast aftur í hóp fjögurra efstu liðanna."

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan