L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
26.07.2010 00:07
|
Sf. Gutt
Kenny heldur að Fernando fari ekki
Kenny Dalglish telur góðar líkur á því að Fernando Torres fari ekki frá Liverpool og verði áfram hjá félaginu. Hann hafði þetta að segja í viðtali við BBC. Kenny telur að koma Joe Cole muni hvetja Fernando til að vera um kyrrt.
,,Þegar Torres sér þetta og ræðir málin við Roy þá er ég viss um að hann fær góðar fréttir. Ég vona að Torres verði áfram. Það er þó bara Fernando sem veit hvað úr verður. Hann er því miður meiddur núna en hann er frábær leikmaður og hann er mjög ánægður hjá félaginu og eins hérna í borginni. Það er líka til mikilla bóta að Stevie verði hérna áfram og koma þeirra Joe Cole, Milan Jovanovic, Jonjo Shelvey og Danny Wilson þýðir að það er búið að fá menn hingað sem á að nota strax en líka menn sem koma til með að nýtast seinna."
Nú er að vona að Kenny Dalglish hafi rétt fyrir sér og Fernando Torres ákveði að vera áfram hjá Liverpool!
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir