| Sf. Gutt
Liverpool tefldi fram varaliðsmönnum og unglingum í þessum leik gegn sterku liði Oldham sem annars spilar í þriðju efstu deild. Tony Silva, Gerardo Bruna og Nicolaj Kohlert skoruðu mörk Liverpool og færðu titil í hús sem er alltaf gleðilegt. John McMahon, þjálfari Liverpool, taldi lið sitt hafa spilað mjög góða knattspyrnu gegn sterku liði Oldham og var mjög ánægður með strákana sína.
Liverpool: Dean Bouzanis, John Flanagan, Emmanuel Mendy, Alex Cooper, Andre Wisdom, fyrirliði, Conor Coady, Tony Silva, Nicolaj Kohlert (Michael Roberts 65. mín.), Nikola Saric, Gerardo Bruna og Vincent Weijl (Michael Ngoo 75. mín.).
Þetta er í ellefta sinn sem Liverpool vinnur þessa keppni en í fyrsta sinn frá leiktíðinni 1972/73. Keppnin á sér mjög langa sögu og hún fór fyrst fram keppnistímabilið 1879/80. Blackburn Rovers hefur oftast unnið keppnina eða seytján sinnum. Þátttökurétt eiga lið frá Lancashire sýslu sem er á norðvestur hluta Englands.
Hér eru myndir úr leiknum af Liverpoolfc.tv.
Þess má geta að eftir viku gæti annar titill bæst í safnið hjá Liverpool en þá leikur liðið við Skelmersdale í úrslitum Liverpool bikarkeppninnar. Sá úrslitaleikur, eins og sá í dag, tilheyrir síðasta keppnistímabili. Vonandi nær Liverpool að vinna tvöfalt þótt seint sé!
TIL BAKA
Liverpool vinnur titil eftir langt hlé!

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan