| Ólafur Haukur Tómasson

Kelly: Roy getur treyst á mig

Þar sem að marga aðalliðsmenn vantaði í æfingabúðirnar í Sviss og í fyrstu tvo æfingaleiki sumarsins þá fengu yngri leikmenn liðsins tækifæri til að sýna sig og sanna fyrir nýja knattspyrnustjóranum, Roy Hodgson. Einn þeirra sem var þar er Martin Kelly, sem lék nokkra leiki með aðalliðinu á síðustu leiktíð, og vonar varnarmaðurinn ungi að hann nái að heilla Hodgson nægilega mikið til að hann fái fleiri tækifæri í aðalliðnu, geri hann það þá mun hann ekki bregðast traustinu.

"Þetta eru spennandi tímar. Það er alltaf spennandi fyrir unga leikmenn á þessum tíma leiktíðarinnar vegna þess að nýr stjóri hefur komið inn og maður byrjar með hreinan skjöld. Hann virðist vera frábær stjóri. Það er auðvelt að skilja hann og sumar ráðleggingar hans hafa hjálpað okkur öllum. Hann veit svo mikið um leikinn að það er frábært, sérstaklega fyrir okkur ungu strákana, að læra af manni með jafn mikla reynslu. Það gerir okkur bara gott.

Þetta er tækifæri okkar til að sýna hvað við getum og þegar við fáum tækifærið þá verðum við að nýta það." sagði Kelly.

Hodgson er að miklu leyti ólíkur fyrrum stjóra Liverpool, honum Rafael Benítez, þar sem að hann vill vera með á æfingunum og er duglegur að grípa inn í, og er Kelly fullviss um að liðið muni heldur betur græða á þeim erfiðu æfingunum sem liðið var á tvisvar á dag í Sviss. Hann telur einnig að æfingabúðirnar hafi hjálpað mikið til við að hrista hópinn betur saman.

"Þetta hefur verið frábært fyrir strákana til að byggja upp form sitt. Æfingarnar hafa verið góðar, aðstaðan er ótrúleg og við höfum allir notið þess. Þetta hefur verið mjög erfitt vegna hæðarinnar. eftir nokkrar mínútur á æfingunni, með allri þessari ákefð þá er maður orðinn andstuttur og það er erfitt að höndla. En við hins vegar vöndumst þessu og þegar við komum heim aftur þá er ég viss um að þetta hafi gert okkur gott og við verðum allir í betra ástandi.

Við náðum allir vel saman. Þetta er ungt lið en við sýndum það gegn Grasshoppers að við höfum reynslu, við vorum mótaðir og erfiðir að brjóta niður."

Kelly fékk eins og áður segir tækifæri með aðalliðinu á síðustu leiktíð en hann lék þrjá leiki og var virkilega óheppinn með að hafa lent í slæmum meiðslum eftir frábæran leik gegn Lyon í Meistaradeildinni. Nú vonast hann til þess að fá fleiri tækifæri í aðalliðinu.

"Ég myndi vilja vera í aðalliðinu reglulega, í Úrvalsdeildinni og í Evrópukeppninni, og vonandi fá fleiri en nokkra leiki undir beltið mitt. Ef það eru meiðsli þá vonast ég til þess að stjórinn getur litið til mín án þess að búast við því að ég muni bregðast. Hann getur treyst á mig núna ef hann þarf."

Kelly byrjaði inn á í báðum æfingaleikjum liðsins og spilaði þar bæði í miðverðinum og í hægri bakverðinum, það skipti ekki máli í hvorri stöðunni hann spilaði en hann stóð sig mjög vel í þeim báðum. Á síðustu leiktíð var hann notaður sem hægri bakvörður og með komu Danny Wilson þá væri alveg eins líklegt að hann muni vera áfram í bakverðinum.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan