L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
24.07.2010 09:07
|
Ólafur Haukur Tómasson
Cole: Við getum veitt samkeppni
Joe Cole sem er nýkominn til Liverpool á frjálsri sölu segist vera fullviss um að gæðin í Liverpool séu nægilega mikil til að liðið geti veitt samkeppni í þeim keppnum sem hann og nýju liðsfélagar hans munu taka þátt í á leiktíðinni.
"Ég kom hingað til að leggja hart að mér og berjast um titla með Liverpool, og með þá leikmenn sem við höfum innanborðs þá er það möguleiki. Skoðið bara liðið sem við höfum nú þegar. Fernando er einn sá besti í heiminum í sinni stöðu, það sama gildir um Stevie Gerrard í sinni stöðu. Svo höfum við Pepe Reina sem er við toppinn og Jamie Carragher sem hefur verið einn sá besti í sínu fagi í langan tíma.
Svo eru Maxi Rodriguez og Dirk Kuyt sem áttu frábæra Heimsmeistarakeppni, og fjölmargir aðrir landsliðsmenn sem maður getur talið upp. Ef við getum haldið leikmönnum heilum þá getum við spilað vel saman. Þetta snýst allt um að við verðum saman sem lið og höfum rétta hugarfarið til að fara alla leið.
Ef maður bætir meiri gæði í það sem við höfum hér fyrir þá getum við farið alla leið, ég trúi því að með þá heimsklassamenn sem við höfum hér þá getum við gert frábæra hluti." sagði Cole.
Það leynir sér ekki að Joe Cole kemur með gott hugarfar og aukin gæði inn í leikmannahóp Liverpool sem gæti gefið liðinu auka neista fyrir komandi leiktíð.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir