| Ólafur Haukur Tómasson
Hollendingurinn Arjen Robben telur að Liverpool hafi gert frábær kaup í sóknarmiðjumanninum Joe Cole sem kom til félagsins á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Chelsea rann út í sumar. Þeir æfðu og spiluðu saman í þrjú ár þegar Robben var á mála hjá Chelsea og því þekkjast þeir vel til hvors annars frá þeim tíma.
Robben, sem hefur ekki verið sá allra vinsælasti hjá stuðningsmönnum Liverpool, gæti verið að vinna sér inn nokkur strik í kladdan frá stuðningsmönnunum en hann telur að með komu Joe Cole hafi Liverpool verið að fullkomna sóknarþríeyki sitt sem er betra en flest öll sóknarþríeyki í Evrópu - þar með talið Zlatan Ibrahimovic, David Villa og Lionel Messi hjá Barcelona!
"Með Steven Gerrard, Fernando Torres og Cole í fremstu víglínu þá held ég að Liverpool verði risar í ensku Úrvalsdeildinni. Síðasta ár var fáranlegt ár en ef þessir þrír smella saman þá get ég séð þá fyrir mér í harðri titilbaráttu. Þú getur horft á þessa þrjá og maður á í erfiðleikum með að finna eitthvað þríeyki sem er betra en þetta í Evrópu, þá tel ég Barcelona með í þessu." sagði Robben, sem er á mála hjá þýska liðinu Bayern Munchen.
Áður en Joe Cole samdi við Liverpool þá kom Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool og samherji Cole hjá enska landsliðinu, fram í fjölmiðlum á Heimsmeistaramótinu og sagði að honum fyndist Cole vera jafn góður á boltanum og Lionel Messi, besti leikmaður heims. Gerrard er ekki sá eini sem finnst þetta því Robben er honum fullkomlega sammála.
"Ég las orð Gerrard þegar hann segir að Joe er jafn góður á boltanum og Messi og gæti ekki verið honum meira sammála. Eftir að hafa æft með honum svona lengi þá get ég sagt ykkur frá nokkrum hlutum sem hann getur gert með boltann sem er með því allra besta sem ég hef á ævinni séð.
Ef Joe verður spilað meira á miðsvæðinu þá mun hann skora og búa til helling af mörkum, ég sé hann sem líklegan kandídat í valinu á leikmanni tímabilsins. Hann er ekki bara í brögðunum, útsjónarsemi hans er frábær. Möguleikarnir á að hann muni búa til hluti fyrir Torres munu hjálpa Liverpool að vinna titil á tímabilinu.
Mér finnst það hafa verið stór mistök hjá Chelsea að láta Joe fara og ég er full viss um að stuðningsmenn liðsins eru á sama máli. Á 28 ára aldrinu, jafnvel með meiðslasögu hans, þá er Joe klárlega fimmtán milljóna punda maður á leikmannamarkaðnuim."
Það er ekki nokkur spurning um að það séu ekki allir á sama máli og Robben um að þetta sé besta sóknarþríeyki í heiminum, og þá allavega ekki stuðningsmenn annara liða en Liverpool, en það er þó líklega óhætt að segja að þessir þrír leikmenn líta virkilega ógnvekjandi út saman nái þeir að haldast allir heilir af meiðslunum sem hafa hrjáð þá undanfarin tímabil.
TIL BAKA
Sóknartríó Liverpool engu síðra en hjá Barcelona!
Hollendingurinn Arjen Robben telur að Liverpool hafi gert frábær kaup í sóknarmiðjumanninum Joe Cole sem kom til félagsins á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Chelsea rann út í sumar. Þeir æfðu og spiluðu saman í þrjú ár þegar Robben var á mála hjá Chelsea og því þekkjast þeir vel til hvors annars frá þeim tíma.Robben, sem hefur ekki verið sá allra vinsælasti hjá stuðningsmönnum Liverpool, gæti verið að vinna sér inn nokkur strik í kladdan frá stuðningsmönnunum en hann telur að með komu Joe Cole hafi Liverpool verið að fullkomna sóknarþríeyki sitt sem er betra en flest öll sóknarþríeyki í Evrópu - þar með talið Zlatan Ibrahimovic, David Villa og Lionel Messi hjá Barcelona!
"Með Steven Gerrard, Fernando Torres og Cole í fremstu víglínu þá held ég að Liverpool verði risar í ensku Úrvalsdeildinni. Síðasta ár var fáranlegt ár en ef þessir þrír smella saman þá get ég séð þá fyrir mér í harðri titilbaráttu. Þú getur horft á þessa þrjá og maður á í erfiðleikum með að finna eitthvað þríeyki sem er betra en þetta í Evrópu, þá tel ég Barcelona með í þessu." sagði Robben, sem er á mála hjá þýska liðinu Bayern Munchen.
Áður en Joe Cole samdi við Liverpool þá kom Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool og samherji Cole hjá enska landsliðinu, fram í fjölmiðlum á Heimsmeistaramótinu og sagði að honum fyndist Cole vera jafn góður á boltanum og Lionel Messi, besti leikmaður heims. Gerrard er ekki sá eini sem finnst þetta því Robben er honum fullkomlega sammála.
"Ég las orð Gerrard þegar hann segir að Joe er jafn góður á boltanum og Messi og gæti ekki verið honum meira sammála. Eftir að hafa æft með honum svona lengi þá get ég sagt ykkur frá nokkrum hlutum sem hann getur gert með boltann sem er með því allra besta sem ég hef á ævinni séð.
Ef Joe verður spilað meira á miðsvæðinu þá mun hann skora og búa til helling af mörkum, ég sé hann sem líklegan kandídat í valinu á leikmanni tímabilsins. Hann er ekki bara í brögðunum, útsjónarsemi hans er frábær. Möguleikarnir á að hann muni búa til hluti fyrir Torres munu hjálpa Liverpool að vinna titil á tímabilinu.
Mér finnst það hafa verið stór mistök hjá Chelsea að láta Joe fara og ég er full viss um að stuðningsmenn liðsins eru á sama máli. Á 28 ára aldrinu, jafnvel með meiðslasögu hans, þá er Joe klárlega fimmtán milljóna punda maður á leikmannamarkaðnuim."
Það er ekki nokkur spurning um að það séu ekki allir á sama máli og Robben um að þetta sé besta sóknarþríeyki í heiminum, og þá allavega ekki stuðningsmenn annara liða en Liverpool, en það er þó líklega óhætt að segja að þessir þrír leikmenn líta virkilega ógnvekjandi út saman nái þeir að haldast allir heilir af meiðslunum sem hafa hrjáð þá undanfarin tímabil.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

