| Sf. Gutt

Albert Riera seldur

Albert Riera hefur yfirgefið Liverpool. Hann gekk í dag til liðs við gríska liðið Olympiakos. Samkvæmt vefsíðu BBC fékk Liverpool 3,3 milljónir eterlingspunda fyrir Spánverjann. Sú upphæð gæti hækkað upp í 4,6 milljónir ef viss ákvæði í kaupsamningnum taka gildi. Samningurinn gildir í fjögur ár. 

Albert hafi þetta að segja þegar hann talaði við blaðamenn í Grikklandi. ,,Ég þrái að vinna titla vegna þess að ég hef ekki unnið neina á ferli mínum. Ég vann enga titla þau tvö ár sem ég var hjá Liverpool og þess vegna ákvað ég að ganga til liðs við Olympiakos. Ég er ánægður með þessa ákvörðun mína og hér mun ég spila með hópi af leikmönnum sem ætla sér að vinna titla."

Múgur og margmenni tók á móti Albert við komuna til Aþenu. Í fréttum einhverra fjölmiðla var talað um að þúsundir hefðu mætt til að hylla Albert. Hann var alveg steinhissa yfir þessum móttökum. ,,Mér var sagt að eitthvað af stuðningsmönnum myndu koma en ef satt skal segja þá átti ég allt ekki von á svona miklum fjölda. Þetta kom mér alveg í opna skjöldu." Þess má geta að Albert er ekki sá eini í Riera fjölskyldunni sem dvelur nú í Grikklandi. Sito, bróðir hans, spilar með Panionios þar í landi.

Albert Riera kom til Liverpool frá Espanyol í lok sumars 2008. Hann kom beint inn í byrjunarlið gegn Manchester United og fagnaði 2:1 sigri á Anfield Road. Hann lék um tíma sem lánsmaður hjá Manchester City og þar fagnaði hann líka sigri gegn United í sínum fyrsta leik!

Albert gekk mjög vel á köflum á fyrri leiktíð sinni hjá Liverpool en ekkert gekk upp á þeirri seinni. Hann átti lengi við meiðsli að stríða og svo endaði það með því að hann kom sér út úr húsi eftir að hafa gagnrýnt Rafael Benítez harkalega í fjölmiðlaviðtali í mars. Hann var í kjölfarið settur í keppnisbann af félaginu og lék aldrei framar með Liverpool. Hann vildi seinna friðmælast en skaðinn var skeður. Albert lék alls 56 leiki með Liverpool og skoraði fimm mörk.
 
Brottför Albert Riera kemur ekki á óvart og líklega er það öllum fyrir bestu að hann yfirgefi félagið. Eitthvað fjármagn kemur í kassann og eins þarf ekki að borga manni laun sem var ekki búinn að koma sér vel hjá félaginu.

Roy Hodgson sagði reyndar að allir leikmenn væru með hreint borð hjá honum og Albert átti að spila æfingaleikina í Sviss. Hann var varamaður gegn Grasshoppers núna í vikunni en var ekki notaður vegna þess að viðræður voru hafnar við Olympiakos og ekki hefði verið gott ef eitthvað hefði komið fyrir vinstri útherjann í leiknum.  

Þrátt fyrir allt er nú rétt að óska Albert Riera góðs gengis.



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan