| Ólafur Haukur Tómasson
Skotinn efnilegi Danny Wilson gekk til liðs við Liverpool í vikunni, hann var því fjórði leikmaðurinn til að ganga til liðs við Liverpool í sumar. Hann kostaði Liverpool tvær milljónir punda, en það verð gæti hækkað upp í fimm milljónir punda, og gæti það reynst frábær kaup ef horft er til framtíðar. Hann segist hlakka mikið til að vinna undir stjórn Roy Hodgson.
"Hann [Roy Hodgson] er stjóri með mikla reynslu. Hann hefur unnið í mismunandi löndum svo hann hefur kannski öðruvísi sýn á hlutunum en það sem Walter Smith hafði og ég hlakka til að læra hjá honum." sagði Skotinn.
Að vinna með Roy Hodgson er ekki það eina sem hann hlakkar til að upplifa hjá Liverpool. Hjá Liverpool getur hann spilað og æft með leikmönnum eins og Steven Gerrard, Fernando Torres og ný stórstjörnunni Joe Cole.
"Það verður frábært. Leikmenn leiðbeina öðrum leikmönnum og þeir eru þrjú af stærstu nöfnunum í boltanum, svo vonandi get ég lært af þeim í leikjum eða á æfingum og ná að fá einhver góð ráð."
Það hafa margir Skotar verið sigursælir hjá Liverpool og nokkur af stærstu nöfnunum í sögu Liverpool hafa komið frá Skotlandi, og einnig sigursælir knattspyrnustjórar. Danny veit allt um það og segir að hann vilji gjarnan feta í fótspor Kóngsins, Kenny Dalglish.
"Kenny Dalglish er einn af bestu leikmönnum sem Skotar hafa getið af sér og sem slíkur það að koma til félagsins sem hann spilaði fyrir og gerði vel hjá það er frábært. Ég ræddi við hann eftir að ég skrifaði undir og hann óskaði mér alls hins besta. Hann er goðsögn í Skotlandi og vonandi feta ég í hans fótspor og náð árangri hér líkt og hann gerði."
Efniviðurinn í varnarlínu Liverpool er gífurlega öflugur en ásamt Wilson þá eru meðal annars þeir Dani Ayala og Martin Kelly sem gæti þýtt að vörnin hjá Liverpool verði vel mönnuð í mörg ár.
TIL BAKA
Danny: Ég vil feta í fótspor Kóngsins!
Skotinn efnilegi Danny Wilson gekk til liðs við Liverpool í vikunni, hann var því fjórði leikmaðurinn til að ganga til liðs við Liverpool í sumar. Hann kostaði Liverpool tvær milljónir punda, en það verð gæti hækkað upp í fimm milljónir punda, og gæti það reynst frábær kaup ef horft er til framtíðar. Hann segist hlakka mikið til að vinna undir stjórn Roy Hodgson."Hann [Roy Hodgson] er stjóri með mikla reynslu. Hann hefur unnið í mismunandi löndum svo hann hefur kannski öðruvísi sýn á hlutunum en það sem Walter Smith hafði og ég hlakka til að læra hjá honum." sagði Skotinn.
Að vinna með Roy Hodgson er ekki það eina sem hann hlakkar til að upplifa hjá Liverpool. Hjá Liverpool getur hann spilað og æft með leikmönnum eins og Steven Gerrard, Fernando Torres og ný stórstjörnunni Joe Cole.
"Það verður frábært. Leikmenn leiðbeina öðrum leikmönnum og þeir eru þrjú af stærstu nöfnunum í boltanum, svo vonandi get ég lært af þeim í leikjum eða á æfingum og ná að fá einhver góð ráð."
Það hafa margir Skotar verið sigursælir hjá Liverpool og nokkur af stærstu nöfnunum í sögu Liverpool hafa komið frá Skotlandi, og einnig sigursælir knattspyrnustjórar. Danny veit allt um það og segir að hann vilji gjarnan feta í fótspor Kóngsins, Kenny Dalglish.
"Kenny Dalglish er einn af bestu leikmönnum sem Skotar hafa getið af sér og sem slíkur það að koma til félagsins sem hann spilaði fyrir og gerði vel hjá það er frábært. Ég ræddi við hann eftir að ég skrifaði undir og hann óskaði mér alls hins besta. Hann er goðsögn í Skotlandi og vonandi feta ég í hans fótspor og náð árangri hér líkt og hann gerði."
Efniviðurinn í varnarlínu Liverpool er gífurlega öflugur en ásamt Wilson þá eru meðal annars þeir Dani Ayala og Martin Kelly sem gæti þýtt að vörnin hjá Liverpool verði vel mönnuð í mörg ár.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

