| Sf. Gutt
Guðlaugur Victor Pálsson lék í gærkvöldi í fyrsta sinn með aðalliði Liverpool. Þótt ekki hafi verið um opinberan leik þá var þetta góður áfangi fyrir landa okkar
Guðlaugur kom inn á sem varamaður gegn Grasshoppers og lék síðustu tuttugu mínúturnar í leiknum. Guðlaugur var sterkur í stöðu miðvarðar við hliðina á Spánverjanum Daniel Ayala sem mörgum þótti besti maður Liverpool í leiknum.
Guðlaugur getur verið nokkuð sáttur með þessa frumraun sína í aðalliðinu. Hann missti einu sinni mann frá sér en annars fór ekkert framhjá honum. Hann hreinsaði kröftuglega frá þegar þurfti og virtist öruggur.
Roy Hodgson, framkvæmdastjóri Liverpool, gat hans og annarra ungliða, sem hann taldi hafa staðið sig vel, eftir leikinn í gærkvöldi. ,,Strákarnir stóðu sig mjög vel. Þetta er hópur stráka sem margir hverjir hafa ekki leikið með aðalliðinu og eru ekki hagvanir í því. Leikmenn eins og Tom Ince, Jack Robinson og Victor Pálsson eru allir mjög ungir leikmenn."
Guðlaugur Victor kom til Liverpool í janúar 2009. Hann lék til að byrja aftarlega á miðjunni en á síðasta keppnistímabili var hann færður aftur í vörnina þar sem hann lék flesta leiki sem miðvörður. Hann hefur verið fastamaður í varaliðinu frá því hann kom til Liverpool.
Æfingaleikir eru ekki taldir sem opinberir leikir og því fær Guðlaugur leikinn í gær ekki skráðan sem aðalliðsleik. Haukur Ingi Guðnason lék aldrei með aðalliði Liverpool en hann komst skrefi lengra en Guðlaugur er nú kominn. Haukur komst á varamannabekk aðalliðsins í þrígang vorið 1998 eins og sjá má í skýrslum hér. Haukur lék líka, eins og Guðlaugur hefur nú gert, æfingaleiki með aðalliðinu. Framtíðin leiðir svo í ljós hvort Guðlaugur kemst nær aðalliðinu en hann hefur nú gert.
TIL BAKA
Frumraun Guðlaugs Victors í aðalliðinu!
Guðlaugur Victor Pálsson lék í gærkvöldi í fyrsta sinn með aðalliði Liverpool. Þótt ekki hafi verið um opinberan leik þá var þetta góður áfangi fyrir landa okkarGuðlaugur kom inn á sem varamaður gegn Grasshoppers og lék síðustu tuttugu mínúturnar í leiknum. Guðlaugur var sterkur í stöðu miðvarðar við hliðina á Spánverjanum Daniel Ayala sem mörgum þótti besti maður Liverpool í leiknum.
Guðlaugur getur verið nokkuð sáttur með þessa frumraun sína í aðalliðinu. Hann missti einu sinni mann frá sér en annars fór ekkert framhjá honum. Hann hreinsaði kröftuglega frá þegar þurfti og virtist öruggur.
Roy Hodgson, framkvæmdastjóri Liverpool, gat hans og annarra ungliða, sem hann taldi hafa staðið sig vel, eftir leikinn í gærkvöldi. ,,Strákarnir stóðu sig mjög vel. Þetta er hópur stráka sem margir hverjir hafa ekki leikið með aðalliðinu og eru ekki hagvanir í því. Leikmenn eins og Tom Ince, Jack Robinson og Victor Pálsson eru allir mjög ungir leikmenn."
Guðlaugur Victor kom til Liverpool í janúar 2009. Hann lék til að byrja aftarlega á miðjunni en á síðasta keppnistímabili var hann færður aftur í vörnina þar sem hann lék flesta leiki sem miðvörður. Hann hefur verið fastamaður í varaliðinu frá því hann kom til Liverpool.
Æfingaleikir eru ekki taldir sem opinberir leikir og því fær Guðlaugur leikinn í gær ekki skráðan sem aðalliðsleik. Haukur Ingi Guðnason lék aldrei með aðalliði Liverpool en hann komst skrefi lengra en Guðlaugur er nú kominn. Haukur komst á varamannabekk aðalliðsins í þrígang vorið 1998 eins og sjá má í skýrslum hér. Haukur lék líka, eins og Guðlaugur hefur nú gert, æfingaleiki með aðalliðinu. Framtíðin leiðir svo í ljós hvort Guðlaugur kemst nær aðalliðinu en hann hefur nú gert.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

