| Sf. Gutt

Liverpool er stærsta félagið!

Joe Cole segir að Liverpool sé stærsta knattspyrnfélag á Englandi! Hann segir að hann hafi ekki verið í vafa um að fara til Liverpool þegar það bauðst.

,,Ég veit að ég er búinn að taka réttu ákvörðunina og ég hlakka til. Þetta er áskorun fyrir mig því ég er búinn að spila í London allt mitt líf. Ég hefði getað verið áfram hjá Chelsea því að stuðningsmennirnir elskuðu mig og ég vann titla þar. En ég vildi takast á nýja áskorun og þegar ég vissi að Liverpool hefði áhuga var enginn vafi í huga mínum því þetta er stærsta félag landsins."

Roy Hodgson var ráðinn knattspyrnustjóri Liverpool á dögunum og ráðning hans hafði mikið að segja þegar Joe Cole ákvað að ganga til liðs við félagið.

,,Ég spjallaði við stjórann um fótbolta og ég hreifst af honum. Félagið hefur verið með spænska og franska framkvæmdastjóra undanfarið og ég held að það komi nýtt líf inn í félagið með því að fá Englending. Félagið endaði í sjöunda sæti á síðasta ári sem var ekki nógu gott og hann útskýrði fyrir mér hvert félagið vill stefna. Ég hoppaði um borð því að með leikmennina sem við höfum hér og leikmennina sem á að reyna að fá þá munum við án nokkurs vafa stefna í rétta átt."

Joe Cole segist lengi hafa heillast af andrúmsloftinu á Anfield Road og stuðningsmönnum Liverpool. Hann segist munu leggja sig allan fram fyrir þá.

,,Ég veit hvað þeir vilja og ég veit að þeir vilja eiga lið sem þeir geta verið stoltir af. Ég mun á hverjum einasta degi lifa mig inn í félagið og leggja mig allan fram. Ég vil mæta á svæðið hlaupa og berjast fyrir strákana í liðnu og stuðningsmennina. Þetta ætla ég mér alltaf að gera og ég veit að Roy er sá sem getur stillt saman strengina svo við verðum lið. Þetta snýst allt um samstöðu okkar sem liðs og liðsandinn getur komið manni langt. Það eru líka mjög góðir leikmenn hérna og þeir eiga líka eftir að fleyta okkur langt."

,,Ég fullvissa stuðningsmennina um að ég mun leggja mig allan fram í hverjum einasta leik. Ég er stoltur yfir því að spila fyrir þetta félag. Ég mun gera allt sem ég get á öllum æfingum og í hverjum einasta leik til að hjálpa félaginu til velgengni og koma einhverjum bikurunum upp í hillu."

Joe er greinilega mjög spenntur fyrir því að takast á við þá miklu áskorun sem fylgir því að spila með Liverpool og svo er bara svo gaman að vera leikmaður Liverpool!

,,Þetta er draumi líkast. Ég er bara búinn að vera hjá félaginu í 48 klukkustundir og ég er enn skýjum ofar. Allt gerðist svo snöggt. Ég vissi alltaf að þetta er gríðarlega stórt félag en maður áttar sig samt ekki alveg á stærð félagsins fyrr en maður gengur til liðs við það. Það er fólk búið að hringja í mig sem ég vissi ekki að héldi með Liverpool. Það er engu líkara en allir sem ég rekst á haldi með Liverpool. Þetta er risavaxið félag."
 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan