Forsíða

Frétt

21.07.2010 21:07 | Ólafur Haukur Tómasson

Roy: Wilson hefur einstaka hæfileika

Fyrir nokkrum klukkustundum skrifaði hinn átján ára gamli Danny Wilson undir þriggja ára samning við Liverpool eftir að hann var keyptur frá skosku meisturunum í Glasgow Rangers. Roy Hodgson er ánægður með að Liverpool skuli vera að fá jafn efnilegan leikmann í sínar raðir en hann telur að mikill efniviður sér í liði Liverpool.

"Í viðbót við það sem við erum að gera með aðalliðinu þá verðum við að hafa augun og eyrun opin fyrir öllum unglingum sem geta orðið framtíðarstjörnur. Því fyrr sem við náum þeim því betra. Í leiknum gegn Grasshoppers sáum við unga stráka eins og Eccleston og Amoo, unga leikmenn sem sýndu að þeir hafa einstaka hæfileika, og við verðum að finna fleiri leikmenn sem hafa jafn góðir. Danny Wilson er klárlega einn þeirra og ég er hæst ánægður með að við höfum keypt hann til félagsins." 

Í fyrsta æfingaleik tímabilsins sem fram fór fyrr í dag þá gerði ungt lið Liverpool markalaust jafntefli við svissneska liðið Grasshoppers. Hodgson hrósaði ungu strákunum fyrir frammistöður sínar í leiknum og segir þá hafa gert félagið stolt.

"Strákarnir stóðu sig mjög vel. Þetta er hópur stráka, margir þeirra hafa ekki sparkað bolta fyrir aðalliðið og ekki einu sinni umgengist aðalliðið. Leikmenn eins og Tom Ince, Jack Robinson og [Guðlaugu] Victor Pálsson eru allir mjög ungir leikmenn. Svo að mæta liði eins og Grasshoppers, sem eru við toppinn í svissnesku deildinni og gátu notað allt sitt lið, og ná markalausu jafntefli er flottur árangur með nokkra leikmenn sem hafa ekki sparkað bolta utan Akademíuna.

Það er spurning hvort að það muni ekki verða ögn meiri reynsla í liði Liverpool um helgina þegar það mætir Kaiserslautern. Mögulega gætu Sotiris Kyrgiakos, Milan Jovanovic og jafnvel Joe Cole og Danny Wilson tekið þátt í leiknum.

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin