| Ólafur Haukur Tómasson

Wilson: Stór áskorun fyrir mig

Varnarmaðurinn Danny Wilson var í dag opinberaður sem leikmaður Liverpool eftir að félasskipti hans frá Glasgow Ragners voru staðfest í gærkvöldi. Skotinn er í skýjunum með að vera kominn til Liverpool eftir að hafa verið orðaður við félagið í langan tíma.

"Það er frábær tilfinning að skrifa undir hjá Liverpool. Hvert sem maður fer þá þekkja allir Liverpool FC og ég er mjög ánægður með að vera hér. Þetta er stór áskorun fyrir mig. Þetta er ein besta deild í heiminum og ég mun spila fyrir eitt stærsta félag í heiminum. Þar sem ég kem frá Skotlandi þá getur fólk haldið að ég sé ekki klár í þetta en það er áskorun, ég vil leggja á mig og það er ástæðan fyrir því að ég kom hingað.

Allir þekkja sögu félagsins með átján deildartitla. Það var ekki erfið ákvörðun að koma hingað því Liverpool er ekki félag sem kemur að spyrjast fyrir um mann á hverjum degi, svo ég get ekki beðið eftir að byrja. Það voru félög með áhuga á mér sem eru í Meistaradeildinni en þegar Liverpool setti sig í samband við mig kom aðeins eitt félag til greina." sagði Skotinn ungi.

Wilson er fjórði maðurinn sem Liverpool fær til sín í sumar og önnur kaup Roy Hodgson hjá Liverpool en hann kom aðeins degi eftir að greint var frá samningnum við Joe Cole. Hann kostar Liverpool tvær milljónir punda en kaupverðið gæti hækkað upp í fimm milljónir ef hann nær ákveðnum fjölda leikja fyrir liðið.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan