| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Cole mun blómstra hjá Liverpool
Roy Hodgson segir að Joe Cole eigi eftir að blómstra hjá Liverpool. Hann segir laun Cole innan eðlilegra marka.

Roy Hodgson segist ekki ætla að ræða launamál Joe Cole frekar. Hann segir að leikmenn sem komi á frjálsri sölu fái alltaf há laun, það sé eðlilegt. Hann segir hinsvegar að það sé alveg ljóst að Cole hefði getað fengið hærri laun annars staðar en hjá Liverpool.
Joe Cole hefur nú skrifað undir fjögurra ára samning við Liverpool, en mikið kapphlaup hefur staðið yfir um þjónustu þessa hæfileikaríka enska landsliðsmanns. Lundúnaliðin Tottenham, Arsenal og West Ham báru öll víurnar í kappann, en á endanum ákvað hann að rífa sig upp og flytja norður í land. Hann sér vonandi ekki eftir því.
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, hefur látið hafa það eftir sér að launakröfur Cole hafi verið það háar að Chelsea hefði ekki viljað endurnýja samninginn við hann og talsvert hefur verið rætt um það í breskum fjölmiðlum að Liverpool hafi fallist á að greiða honum óeðlilega há laun. Þessu vísar Roy Hodgson á bug.
,,Ég átti langt og gott samtal við Joe áður en við fórum til Sviss í æfingabúðir. Það var held ég annan daginn minn sem stjóri Liverpool. Þar gerði ég honum ljóst að ef hlutirnir ættu að snúast um hvaða lið gæti borgað honum mest þá tækjum við ekki þátt í því. Við hefðum einfaldlega ekki bolmagn í svoleiðis æfingar. Hann svaraði því til að sér þætti eðlilegt að hann fengi góð laun, þar sem félagið þyrfti ekki að borga fyrir að fá hann í sínar raðir, en hann myndi alltaf byggja val sitt á félagi á því hvar og með hverjum hann vildi spila fótbolta. Ekki hvar hann fengi mestan pening."
,,Ef ég á að segja alveg eins og er þá veit ég ekki nákvæmlega hvað Cole hefur í laun. Og ég vil ekki vita það. Christian Purslow sá um samningagerðina og hann er ánægður með útkomuna. Það er nóg fyrir mig að vita það", segir Hodgson.
,,Ég er viss um að Cole tók rétta ákvörðun með því að koma til okkar. Hér mun hann spila mikið, ef allt gengur vel, og hann mun fá öll tækifæri til þess að sýna virkilega hvað hann getur. Nú er það bara hans að standa undir þeim væntingum sem til hans eru gerðar. Ég er viss um að hann mun gera það og veita okkur ómælda gleði á næstu árum."

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan