| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Joe Cole verður númer 10
Joe Cole hefur nú formlega skrifað undir samning við Liverpool. Við það tækifæri var tilkynnt að Cole fengi treyju númer 10.
Búist hafði verið við því að Cole fengi hið goðsagnakennda númer 7 á bakið, en það númer hefur enginn borið síðan Robbie Keane fór frá félaginu. En nú er semsagt ljóst að Cole verður með 10 á bakinu, sama númer og hann bar hjá Chelsea.
Það léttir hugsanlega einhverri pressu af Joe Cole að þurfa ekki að burðast með sjöuna goðsagnakenndu aftan á sér, en það er eins og allir vita númerið sem Kevin Keegan og kóngurinn sjálfur, Kenny Dalglish, báru á sínum tíma. Ýmsir ágætir leikmenn hafa borið númerið síðan, en flestir hafa þeir valdið vonbrigðum. Má þar kannski helst nefna þá Robbie Keane og Harry Kewell.
Þetta númeraval Joe Cole setur hinsvegar Serbann Milan Jovanovic í vanda, en honum hafði verið úthlutað númer 10 fyrir nokkrum dögum. Nú er búist við því að hann fái númer 11 á bakið, en það númer hefur Albert Riera borið. Talið er fullvíst að Albert sé á förum frá félaginu og númerið ætti því að losna á næstu dögum.

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan