L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
21.07.2010 06:07
|
Sf. Gutt
Liverpool kaupir Danny Wilson!
Seint í gærkvöldi var tilkynnt á Liverpoolfc.tv að Liverpool hefði keypt Danny Wilson frá Glasgow Rangers. Í gær var fjallað í mörgum fjölmiðlum um að Liverpool væri við að ganga frá samkomulagi við Rangers. Nú hefur sem sagt verið staðfest að Danny er orðinn leikmaður Liverpool!
Þessi kaup voru líka staðfest á heimasíðu Rangers og þar sagði talsmaður félagsins að Liverpool myndi borga tvær milljónir sterlingspunda núna strax. Kaupupphæðin getur svo farið upp í fimm milljónir ef ákveðin ákvæði í kaupsamningnum taka gildi.
Byrjað var að vinna í því að ná Danny Wilson til Liverpool á valdatíma Rafael Benítez. Roy Hodgson, arftaki hans, hefur greinilega haft álit á þessum skoska strák því nú eru vistaskipti hans í höfn. Það sama má segja um kaupin á Milan Jovanovic. Þau voru undirbúin á meðan Rafa var við stjórn.
Danny, sem er 18 ára, þykir einn efnilegasti varnarmaður sem hefur komið fram í Skotlandi í nokkurn tíma. Forráðamenn Rangers vildu því skiljanlega halda Danny en hann hafði ekki áhuga á að framlengja samning sinn við félagið.
Liverpool hefur nú keypt tvo Breta á tveimur dögum og myndu margir telja það skref í rétta átt í leikmannamálum. Á síðustu árum hafa tiltölulega fáir Bretar verið hjá Liverpool en nú fjölgar þeim. Persónulega finnst mér það hið besta mál.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir