| Ólafur Haukur Tómasson

Viðtal við Jonjo Shelvey

Jonjo Shelvey var keyptur til Liverpool frá Charlton Athletic á tæpar tvær milljónir punda rétt fyrir lok síðasta tímabils.

Hann er gífurlegt efni og þykir einn af þeim mest spennandi unglingum sem Englendingar hafa upp á að bjóða og eru miklar vonir bundnar við þennan öfluga miðjumann.

Fyrir skömmu var hann fenginn í sitt fyrsta viðtal eftir að hann kom til Liverpool og segir hann meðal annars frá því að þessi félagsskipti séu draumi líkust og hann er staðráðinn í að ná árangri.

"Að vera hjá Liverpool er eitthvað sem öll börn dreymir um. Þegar ég var í skólanum og úti á leikvelli þá þóttist ég vera leikmaður eins og Steven Gerrard svo það er óraunverulegt að hugsa út í það að ég mun vera að æfa daglega með slíkum leikmönnum.


Ég er mjög spenntur og hlakka til að tímabilið hefjist. Ég vil ná allavega tuttugu leikjum á leiktíðinni svo ég geti byrjað á að koma mér inn í þetta. Ég er vongóður og maður verður að vera það. Þegar þú ert átján ára gamall og ert hent út í leiki á Anfield þá geturðu ekki óttast neitt. Maður verður að fara þangað og gera sitt.

Þetta er auðvitað allt öðruvísi lífstíll en hjá Charlton. Æfingarnar eru erfiðari, allir eru hágæða atvinnumenn svo það er allt öðruvísi. Þetta er ólíkt en ég nýt þess. Þetta er erfitt en ég læt mig hafa það og það er gott að vera hér. Ég hélt að mér ætti eftir að finnast þetta mun erfiðara en ég hef fengið mikla aðstoð frá félaginu. Foreldrar mínir eru að koma sem gerir þetta mun auðveldara. Pabbi kemur á mánudögum og þriðjudögum og ég kem honum niður á lestarstöð á miðvikudagsmorgnum fyrir æfingu. Þá kemur mamma og verður komin þegar ég kem heim sem er frábært því hún hefur rosalega gaman að elda.

Ég hef ekki enn náð að koma því í hausinn á mér að ég gæti verið að fara að spila vikulega í Úrvalsdeildinni. Þetta er óraunverulegt." sagði miðjumaðurinn ungi.

Jonjo hefur alist upp sem stuðningsmaður West Ham og eru aðeins fjögur ár síðan hann horfði á úrslitaleik Liverpool og West Ham United í FA bikarnum. Þann leik vann Liverpool eftir vítaspyrnukeppni en Steven Gerrard, uppáhalds leikmaður Jonjo, skoraði jöfnunarmark Liverpool í uppbótartíma með bylmingsskoti utan af velli. Auðvitað sá Jonjo leikinn og hlakkar mikið til að spila fyrir Liverpool.

"Ég var á Ítalíu með Charlton á þeim tíma og við horfðum á leikinn á bar. Þar voru nokkrir Liverpool stuðningsmenn og þeir nudduðu salti í sárin allan daginn. Ég er kannski stuðningsmaður West Ham en þegar maður horfir á Liverpool í sjónvarpinu og heyrir stuðningsmenning syngja þá fær maður gæsahúð. Það verður ótrúlegt að spila þarna. Ég get ekki beðið. Ég mun eflaust falla í yfirlið áður en ég geng út á völlinn."

Hann gaf svo einnig stuðningsmönnum smá innsýn á hvernig leikmaður hann er og hvað hann muni koma með inn í lið Liverpool.

"Ég er alhliðaleikmaður. Ég get varist þó ég kjósi frekar að keyra fram til að skora mörk og búa eitthvað til. Ég var vanur því að spila í svæðinu fyrir aftan framherjann hjá Charlton en ég kýs frekar að spila á miðri miðjunni og stjórna spilinu. Eftir að hafa horft á Úrvalsdeildina í sjónvarpinu þá virðist maður fá meiri tíma og meira svæði með boltann miðað við hvernig það er í annarri deildinni og það hentar mér. Ég get ekki beðið eftir því að fá að sýna stuðningsmönnunum hvað ég get."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan