| Ólafur Haukur Tómasson

Liverpool að kaupa Wilson!

Góðar fréttir frá Liverpool koma nú í hrönnum síðustu tvo dagana en til að byrja með samdi Joe Cole við Liverpool í gær og í kjölfarið greindi fyrirliðinn Steven Gerrard frá því að hann ætli sér ekki í burtu frá félaginu. Það nýjasta sem gæti glatt stuðningsmenn Liverpool er að félagið er loksins að landa skoska varnarmanninum Danny Wilson.

Wilson er aðeins átján ára gamall og spilaði sína fyrstu leiki með meistaraliði Rangers á síðustu leiktíð. Hann hefur verið orðaður við Liverpool síðan í vetur og áhugi Liverpool ekki verið óáberandi en talið var að félagsskiptin myndu detta í gegn vegna þess að leikmaðurinn fellur ekki undir 'heimamannakvótann' þar sem hann kemur frá Skotlandi en ekki Englandi eða Wales.

Það virðist ekki draga úr áhuga Liverpool sem er nú að landa kappanum eftir að hafa komist að samkomulagi við Rangers um kaupverð. Kaupverðið er tvær milljónir punda en endanleg tala þeirra getur verið allt að fimm milljónir punda nái hann að spilia ákveðna tölu leikja. Þessu var greint frá á heimasíðu Rangers rétt í þessu.

Wilson er örvfættur varnarmaður en í kjölfar sölunnar á Emiliano Insua, síðasta vinstri bakverði Liverpool, sem mun væntanlega ganga í gegn á næstunni þá er spurning hvort að Skotinn verði hugsaður sem vinstri bakvörður eða hvort að hann verði hugsaður sem miðvörður.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan