| Ólafur Haukur Tómasson

Stevie verður um kyrrt!

Góðar fréttir frá Liverpool koma núna á færibandi síðustu daga en í gær staðfesti Liverpool það að Joe Cole væri búinn að semja við félagið og í dag greindi fyrirliðinn, Steven Gerrard, að hann ætli sér að vera áfram í herbúðum Liverpool og hlakki mikið til að spila með Cole undir merkjum Liverpool.

"Þetta eru frábær kaup fyrir okkur. Ég þekk Joe vel í gegnum enska landsliðið og hef séð það með berum augum hve góður leikmaður hann er. Hann hefur sannað hæfileika sína í mörg ár í Úrvalsdeildinni, stundum gegn okkur, svo það verður frábært að spila með honum í rauðri treyju Liverpool. Ég hef sagt honum hve frábært félag þetta er og ég er viss um að Cole sé þessi týpa sem stuðningsmenn okkar munu elska að horfa á." sagði fyrirliðinn.

Framtíð hans virtist vera í lausu lofti yfir Heimsmeistaramótið og virtist margt benda til að Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, myndi reyna að lokka hann til Spánar. Svörin sem Stevie gaf þegar hann var spurður um framtíðina voru oft óljós en það sem hann sagði núna tekur af allan vafa á þessu máli.

"Ég vildi koma þá á hreint að ég þyrfti einfaldlega að einbeita mér að Heimsmeistaramótinu og eiga gott frí með fjölskyldu minni. Ég vildi fá tækifæri til að ræða einslega við Roy Hodgson og eftir að hafa gert það þá er ég mjög heillaður af áformum hans fyrir framtíð liðsins. Ég snéri aftur til æfinga á Melwood í dag ásamt öðrum Heimsmeistaramótsförum og ég get ekki beðið eftir því að ný leiktíð hefst."

Miklar vangaveltur um framtíð nokkura lykilmanna Liverpool hefur verið mikið í umræðunni en nú er Steven Gerrard búið að draga nafn sitt úr hattinum og nú er spurning hvort að þeir Fernando Torres og Javier Mascherano muni slá í sömu strengi og fyrirliði þeirra.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan