| Ólafur Haukur Tómasson

Joe kom ekki peningana vegna!

Roy Hodgson er mjög ánægður með að fá Joe Cole til Liverpool, en hann er einn besti leikmaður Úrvalsdeildarinnar að hans mati. Margar gagnrýnisraddir hafa verið í gangi á ákvörðun Cole þar sem að Liverpool bauð honum meiri peninga en önnur lið og telja margir að peningagræðgi hans hafi haft meira að segja frekar en löngunin til að spila í Meistaradeildinni.

Roy Hodgson er alls ekki sammála þessari græðgiskenningu og greinir frá ástæðunni fyrir því af hverju Cole ákvað að hafna tilboðum frá liðum sem buðu upp á greiða leið í Meistaradeildina í vetur og gekk til liðs við Liverpool.

"Ég er mjög ánægður vegna þess að allur ótti um að þetta færi í peningauppboð hvarf fljótt eftir að ég og Christian Purslow áttum langt samtal við Joe. Vitanlega verður hann á háum launum vegna þess að hann kom á frjálsri sölu. En hann var á háum launum hjá sínu gamla félagi og hann yrði mikilla peninga virði á leikmannamarkaðnum. Við gerðum honum grein fyrir því að við vildum hann eingöngu vegna hæfileika hans í knattsprynu og ef hann passaði inn í launakerfi okkar.

Ég er hæst ánægður að segja að Joe hefur valið Liverpool til þess að koma og spila fótbolta og ekki vegna peninganna. Það var mjög ánægjulegt fyrir mig sem knattspyrnustjóra og fyrir félagið sjálft."

Joe Cole er mjög fjölhæfur sóknarmaður og getur leikið í næstum öllum stöðunum í sóknarlínunni og á báðum köntunum. Hann kemur því með mikla breidd og hæfileika inn í liðið. Hodgson hlakkar mikið til að vinna með leikmanninnum.

"Hann er einn besti sóknarsinnaði miðjumaðurinn á Englandi. Frammistöður hans hjá Chelsea og Englandi hafa sýnt það. Hann er leikmaður sem getur spilað í mörgum sóknarstöðum sem er afar hentugt. Hann er mjög góður leikleikmaður. Fólk mun tala um hæfileika hans á mismunandi hátt en fyrir mitt leyti þá er hann sterkur á mörgum sviðum og það gerir hann að góðum leikmanni sem við vonumst til að geta fengið mikið út úr í vetur."

Joe Cole gekk í gegnum læknisskoðun í dag, sem hann virðist hafa flogið í gegnum, og æfði í fyrsta skiptið með liðsfélögum sínum í Sviss fyrr í dag.

Hér eru myndir frá fyrstu æfingu Joe Cole með Liverpool.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan