L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
19.07.2010 23:07
|
Ólafur Haukur Tómasson
Man eftir honum frá árinu 1995
Það er ekki á hverjum degi sem knattspyrnustjórar hafa upplifað það að vinna með feðgum á sínum ferli en það hefur Roy Hodgson gert enda spannar þjálfaraferill hans langan tíma. Á sínum tíma vann hann með Paul Ince, fyrrum leikmanni Liverpool, hjá Inter Milan og nú er sonur hans, Thomas Ince, að spila undir stjórn Roy hjá Liverpool.
Thomas er aðeins sautján ára gamall og er að stíga fyrstu skref sín með aðalliðinu en hann er með liðinu í Sviss og mun taka þátt í æfingaleikjum liðsins og kannski í leikjunum í Evrópudeildinni ef hann stendur sig vel. Roy man vel eftir Thomas frá því að hann var bara smástrákur sem gaf föður sínum engan frið eftir æfingar.
"Það truflar mig að ég geti ekki látið lengur eins og ég sé fertugur!" sagði Roy Hodgson þegar hann minntist á Thomas og Paul.
"Ég man eftir Thomas frá árinu 1995 þegar hann var ungur drengur sem hljóp um og sparkaði boltum út um allt í íbúð föður hans. Hann sá um það að Paul fékk aldrei stundlegan frið eftir æfingar. Hann hefur eflaust gert
sitt besta til að ganga úr skugga um að Paul héldist í formi! En ég hef verið mjög heillaður af honum.
Hann er hæfileikaríkur ungur drengur, í fullkomnum heimi þá væri maður ekki að láta hann spila leiki af þessum toga en hver veit? Það gæti reynst honum gott."
Thomas fór mikinn með vara- og unglingaliðinu á síðustu leiktíð. Hann er fljótur og leikinn vinstri kantmaður og gæti átt glæsta framtíð fyrir sér hjá Liverpool.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir