Forsíða

Frétt

20.07.2010 10:07 | Sf. Gutt

Ian Rush ánægður með Joe

Ian Rush, markahæsti leikmaður í sögu Liverpool, telur mikinn feng af því að hafa fengið Joe Cole til liðsins. Hann segir Joe frábæran leikmann sem eigi eftir að styrkja Liverpool liðið. Hann telur líka að koma Joe Cole til Liverpool sendi góð skilaboð til stuðningsmanna liðsins!

"Stuðningsmennirnir eiga eftir að kætast mikið því þetta er einmitt leikmaður eins og þeir vildu fá. Þegar síðasta keppnistímabil hófst var ríkjandi mikil bjartsýni meðal stuðningsmannanna og þeir töldu að Liverpool myndi vinna deildina. Þetta var ekki von um titil heldur vissa um að hann myndi vinnast.

"Núna er staðan önnur og stuðningsmennirnir velta því fyrir sér hvort liðið geti kannski náð upp í efstu fjögur sætin. Ég held að þetta sendi stuðningsmönnum Liverpool þau skilaboð að félagið ætli sér stóra hluti."
 
"Mér finnst Liverpool Football Club vera stærsta knattspynufélag í heimi. Við höfum vissulega ekki náð eins góðum árangri eins og við höfum viljað upp á síðkastið en þetta sýnir að við getum ennþá fengið leikmenn, hvort sem um er að ræða enska eða útlenda landsliðsmenn, til okkar."

En mestu skiptir auðvitað að Joe Cole komi til með að styrkja lið Liverpool og Ian Rush er viss um að hann eigi eftir að gera það. 

"Joe Cole er frábær leikmaður. Ég held að hann hafi farið frá Chelsea vegna þess að hann var ekki fastamaður í liðinu. Ég var svolítið undrandi á því að hann skyldi ekki spila meira með Englandi í Heimsmeistarakeppninni því hann er leikmaður sem getur fundið glufur á hvaða vörn sem er."







Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin