L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
19.07.2010 13:07
|
Grétar Magnússon
Joe Cole skrifar undir !
Staðfest var rétt í þessu að enski miðjumaðurinn Joe Cole hefði samþykkt að ganga til liðs við Liverpool og skrifar hann undir fjögurra ára samning. Joe kemur frítt frá Chelsea en hann var samningslaus hjá félaginu.
Joe mun gangast undir læknisskoðun á næstu 48 klukkustundunum og er hann því annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við félagið á þessu sumri, en Milan Jovanovic er nýkominn til félagsins og kom hann einnig frítt.
Joe Cole hefur unnið þrjá deildartitla og FA Bikarinn tvisvar sinnum á sjö ára ferli hjá Chelsea. Hann er uppalinn hjá West Ham United eins og margir aðrir leikmenn enska landsliðsins en hann hefur leikið 56 leiki með enska landsliðinu og skorað í þeim 10 mörk.
Í allt sumar hafa verið vangaveltur um hvert Joe myndi fara og voru helst Arsenal, Manchester United og Tottenham Hotspur nefnd í því efni. Nú liggur fyrir að hann kemur til Liverpool og er óhætt er að segja að þetta séu góðar fréttir fyrir félagið.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld