23.07.2010 12:07 | Mummi
Liverpool Open 2010 - skráning á golf.is

Síðasta sumar ákvað stjórn Liverpoolklúbbsins á Íslandi að endurvekja Liverpool Open golfmótið. Þá var það haldið á Setbergsvelli og komust færri að en vildu. Í ár er ætlunin að vera með enn stærra og flottara mót.
Liverpool Open 2010
Urriðavelli (Golfklúbburinn Oddur) þann 7. ágúst næstkomandi. Ræst verður út af öllum teigum klukkan 13:00 stundvíslega, mæting klukkan 12:00.
Mótið verður punktakeppni með forgjöf, hámarksforgjöf 24 og eiga aðeins þeir rétt á að skrá sig sem hafa löglega skráða forgjöf samkvæmt GSÍ.
Verðlaun verða vegleg og veitt fyrir fyrstu 3 sætin í mótinu.
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum.
Ferðavinningur fyrir einn á Anfield dreginn úr skorkortum að móti loknu.
Verð kr. 4.500 (flott teiggjöf innifalin í verði)
Forskráningu meðlima er nú lokið, en ennþá er pláss í mótinu og geta menn skráð sig í það inn á golf.is.
Að sjálfsögðu er það skylda að vera merktur Liverpool FC á einhvern hátt, annað kostar frávísun úr móti.
Til baka