L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
19.07.2010 00:07
|
Sf. Gutt
Lagt í hann með ungt lið
Roy Hodgson, framkvæmdastjóri Liverpool, telur að hann muni hefja leiktíðina án sterkustu manna liðsins sem eru enn að hvíla sig eftir átökin í Heimsmeistarakeppninni. Alls er heilt byrjunarlið Liverpool ekki komið til æfinga og því er Roy sem sagt ennþá án ellefu leikmanna nú þegar undirbúningur fyrir komandi leiktíð er farinn í gang!
Miðað við þetta gætu ungir og óreyndir menn skipað mörg sæti í byrjunarliðinu þegar Liverpool hefur leik í Evrópudeildinni gegn Rabotnicki eða Mika. Roy segir að læknalið félagsins hafi ráðlagt honum að það væri mjög áhættusamt að drífa þá leikmenn, sem tóku þátt í HM, í alvöruleiki of fljótt eftir að þeir hefja æfingar. Slíkt gæti leitt til meiðsla og ekki væri það gott.
Af þeim leikmönnum sem léku í Suður Afríku eru aðeins þeir Sotirios Kyrgiakos og Milan Jovanovic komnir til æfinga og þeir gætu spilað þessa tvo fyrstu Evrópuleiki. Fjárfesti Liverpool í leikmönnum fyrir þessa fyrstu leiki gætu þeir auðvitað spilað í þessum leikjum svo framarlega að þeir hafi ekki líka verið að spila í Suður Afríku.
Þetta þýðir að efnilegir en óreyndir leikmenn komi að öllum líkindum til að verja heiður Liverpool og koma liðinu yfir fyrstu hindrunina á Evrópuvegferðinni. Að sjálfsögðu er það gott að ungir leikmenn fái tækifæri en á móti kemur að eitthvað mun áhættan aukast á því að Liverpool komist ekki áfram.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir