| Ólafur Haukur Tómasson
Einn eftirsóttasti bitinn á leikmannamarkaðnum í sumar er án nokkurs vafa Joe Cole sem var leystur undan samningi hjá Chelsea eftir að ekki náðist samkomulag þeirra á milli um endurnýjaðan samning við leikmanninn. Liverpool, ásamt nokkrum öðrum liðum, er orðað við hann og í gær voru líkurnar á því að hann væri á leið til Liverpool lækkaðar og lokað var á veðmál á veðbönkum erlendis.
Roy Hodgson segist vera ánægður með að vera bendlaður við gæðaleikmann eins og Joe Cole en segir að ekkert sé í höfn enn og að hann viti ekki mikið um málið.
"Ég er ekki veðjari svo það mig litlu þótt lokað sé fyrir veðmál. Ég veit ekki einu sinni nóg um veðmál til að vita hvað það þýðir. Það eina sem ég veit er að Joe Cole er leikmaður sem er að leita sér að félagi. Ég veit að við höfum verið orðaðir við hann og það er gott að vita til þess að við erum bendlaðir við slíka gæðaleikmenn en ég hef ekkert um málið að segja. Ég hef ekkert rætt við hann en ég átti stutt samtal við hann fyrir einhverju síðan.
Ef þið viljið vita eitthvað um leikmannakaupin og hvernig hlutirnir eru að þróast þá verðið að ræða við Christian Purslow (framkvæmdarstjóra Liverpool F.C.) því hann er maðurinn sem sér um allar þessar viðræður en ekki ég."
Roy Hodgson virðist vera gífurlega fljótur að kæfa niður sterka orðróma sem ganga um alla helstu fréttamiðlana. Hann er duglegur að ræða um dagleg málefni félagsins og er það líklega mjög gott fyrir flesta stuðningsmenn að fá nokkra innsýn á það sem er í gangi á bak við tjöldin hjá félaginu.
TIL BAKA
Roy sáttur með orðróm um Joe Cole
Einn eftirsóttasti bitinn á leikmannamarkaðnum í sumar er án nokkurs vafa Joe Cole sem var leystur undan samningi hjá Chelsea eftir að ekki náðist samkomulag þeirra á milli um endurnýjaðan samning við leikmanninn. Liverpool, ásamt nokkrum öðrum liðum, er orðað við hann og í gær voru líkurnar á því að hann væri á leið til Liverpool lækkaðar og lokað var á veðmál á veðbönkum erlendis.Roy Hodgson segist vera ánægður með að vera bendlaður við gæðaleikmann eins og Joe Cole en segir að ekkert sé í höfn enn og að hann viti ekki mikið um málið.
"Ég er ekki veðjari svo það mig litlu þótt lokað sé fyrir veðmál. Ég veit ekki einu sinni nóg um veðmál til að vita hvað það þýðir. Það eina sem ég veit er að Joe Cole er leikmaður sem er að leita sér að félagi. Ég veit að við höfum verið orðaðir við hann og það er gott að vita til þess að við erum bendlaðir við slíka gæðaleikmenn en ég hef ekkert um málið að segja. Ég hef ekkert rætt við hann en ég átti stutt samtal við hann fyrir einhverju síðan.
Ef þið viljið vita eitthvað um leikmannakaupin og hvernig hlutirnir eru að þróast þá verðið að ræða við Christian Purslow (framkvæmdarstjóra Liverpool F.C.) því hann er maðurinn sem sér um allar þessar viðræður en ekki ég."
Roy Hodgson virðist vera gífurlega fljótur að kæfa niður sterka orðróma sem ganga um alla helstu fréttamiðlana. Hann er duglegur að ræða um dagleg málefni félagsins og er það líklega mjög gott fyrir flesta stuðningsmenn að fá nokkra innsýn á það sem er í gangi á bak við tjöldin hjá félaginu.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

