| Ólafur Haukur Tómasson

Roy um söluna á Insua

Liverpool greindi frá því seint íg ær að félagið hefði samþykkt tilboð Fiorentina í vinstri bakvörðinn Emiliano Insua, það er því ljóst að Liverpool er að missa þriðja vinstri bakvörðinn sinn á nokkrum mánuðum og því enginn vinstri bakvörður eftir í aðalliðinu.

Roy Hodgson kom ekki nálægt sölunni á Insua þar sem viðræður voru hafnar á milli félagana áður en hann var ráðinn, hann sagðist gjarnan vilja halda leikmanninum því honum líkaði leikur hans en nú er ljóst að leikmaðurinn verði ekki í herbúðum Liverpool á næstu leiktíð. Hodgson þakkar Insua fyrir það sem hann hefur gert fyrir félagið og óskar honum góðs gengis í framtíðinni.

"Emiliano hefur farið aftur til Liverpool. Samkomulag hefur náðst við Fiorentina. Við óskum honum góðs ferils og þökkum honum fyrir tímann sem hann hefur eytt hjá Liverpool. Ég reikna með því að hann gangi til liðs við Fiorentina í næstu viku." sagði Hodgson.

Það leynir sér ekki að vinstri bakvörður verður ofarlega á forgangslista Liverpool í sumar og jafnvel gætu fleiri en einn fært sig yfir á Anfield. Insua er nú þriðji aðalliðsmaðurinn til að yfirgefa félagið í félagsskiptaglugganum en Yossi Benayoun og Fabio Aurelio hafa báðir verið látnir fara.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan