| Sf. Gutt
Staðfest var, síðdegis í gær, á Liverpoolfc.tv að Liverpool hafi tekið tilboði í Argentínumanninn Emiliano Insua. Hann mun því á förum hvern næsta dag. Tilboðið í Emiliano er frá ítalska liðinu Fiorentina.
Talsmaður Liverpool segir í fréttinni, á Liverpoolfc.tv, að Emiliano hafi yfirgefið æfingabúðir Liverpool í Sviss og sé farinn til fundar við forráðamenn Fiorentina til að semja um kaup og kjör. Ekki segir í fréttinni hvaða upphæð Fiorentina muni borga fyrir Emiliano. Á hinn bóginn hafa einhverjir fréttamiðlar, síðustu daga, flutt fréttir þess efnis að ítalska liðið hafi boðið fimm milljónir sterlingspunda í Emiliano og er það kannski nærri lagi.
Emiliano Insua kom til Liverpool frá argentínska liðinu Boca Juniors í janúar 2007. Hann kom upphaflega sem lánsmaður en síðar var gengið frá föstum kaupum. Hann vann sér fast sæti í byrjunarliði Liverpool á síðasta keppnistímabili og spilaði 44 leiki og spiluðu aðeins sjö leikmenn fleiri leiki.
Alls hefur Emiliano spilað 62 leiki með Liverpool og skorað eitt mark. Hann hefur leikið einn leik með aðallandsliði Argentínu en var ekki í landsliðshópnum sem tók þátt í Heimsmeistarakeppninni í Suður Afríku. Sumir sparkspekingar töldu hann eiga möguleika í að komast í hópinn hjá Diego Maradona en svo varð ekki.
Eins og er hefur Emiliano Insua ekki yfirgefið Liverpool en það má mikið vera ef hann nái ekki samningum við Fiorentina og flytjist í kjölfarið til Flórens. Segjast verður að þessi tíðindi komi nokkuð á óvart í ljósi þess að Emiliano sýndi góðan stöðugleika á síðasta keppnistímabili.
Fari svo sem fram horfir í þessu söluferli er stóra spurningin sú hver á að spila stöðu vinstri bakvarðar Liverpool á komandi leiktíð. Fabio Aurelio er farinn frá Liverpool en hann, Emiliano og Andrea Dossena spiluðu þessa stöðu síðustu tvær til þrjár leiktíðir. Enginn sérstakur leikmaður varaliðsins er núna tilbúinn í að taka stöðuna en Daniel Agger getur auðvitað leyst hana og gerði það í síðustu leikjunum í vor. Daninn er þó miðvörður
eins og allir vita.
Það segir því sér sjálft að Roy Hodgson hlýtur að þurfa kaupa vinstri bakvörð og það sem allra fyrst. Telja má næsta víst að búið sé að leggja drög að kaupum á nýjum leikmanni. Vinstri bakverðir hafa þó ekki verið orðaðir mikið við Liverpool núna í sumar.
TIL BAKA
Tilboð í Emiliano Insua samþykkt
Staðfest var, síðdegis í gær, á Liverpoolfc.tv að Liverpool hafi tekið tilboði í Argentínumanninn Emiliano Insua. Hann mun því á förum hvern næsta dag. Tilboðið í Emiliano er frá ítalska liðinu Fiorentina. Talsmaður Liverpool segir í fréttinni, á Liverpoolfc.tv, að Emiliano hafi yfirgefið æfingabúðir Liverpool í Sviss og sé farinn til fundar við forráðamenn Fiorentina til að semja um kaup og kjör. Ekki segir í fréttinni hvaða upphæð Fiorentina muni borga fyrir Emiliano. Á hinn bóginn hafa einhverjir fréttamiðlar, síðustu daga, flutt fréttir þess efnis að ítalska liðið hafi boðið fimm milljónir sterlingspunda í Emiliano og er það kannski nærri lagi.
Emiliano Insua kom til Liverpool frá argentínska liðinu Boca Juniors í janúar 2007. Hann kom upphaflega sem lánsmaður en síðar var gengið frá föstum kaupum. Hann vann sér fast sæti í byrjunarliði Liverpool á síðasta keppnistímabili og spilaði 44 leiki og spiluðu aðeins sjö leikmenn fleiri leiki.
Alls hefur Emiliano spilað 62 leiki með Liverpool og skorað eitt mark. Hann hefur leikið einn leik með aðallandsliði Argentínu en var ekki í landsliðshópnum sem tók þátt í Heimsmeistarakeppninni í Suður Afríku. Sumir sparkspekingar töldu hann eiga möguleika í að komast í hópinn hjá Diego Maradona en svo varð ekki.
Eins og er hefur Emiliano Insua ekki yfirgefið Liverpool en það má mikið vera ef hann nái ekki samningum við Fiorentina og flytjist í kjölfarið til Flórens. Segjast verður að þessi tíðindi komi nokkuð á óvart í ljósi þess að Emiliano sýndi góðan stöðugleika á síðasta keppnistímabili.
Fari svo sem fram horfir í þessu söluferli er stóra spurningin sú hver á að spila stöðu vinstri bakvarðar Liverpool á komandi leiktíð. Fabio Aurelio er farinn frá Liverpool en hann, Emiliano og Andrea Dossena spiluðu þessa stöðu síðustu tvær til þrjár leiktíðir. Enginn sérstakur leikmaður varaliðsins er núna tilbúinn í að taka stöðuna en Daniel Agger getur auðvitað leyst hana og gerði það í síðustu leikjunum í vor. Daninn er þó miðvörður
eins og allir vita. Það segir því sér sjálft að Roy Hodgson hlýtur að þurfa kaupa vinstri bakvörð og það sem allra fyrst. Telja má næsta víst að búið sé að leggja drög að kaupum á nýjum leikmanni. Vinstri bakverðir hafa þó ekki verið orðaðir mikið við Liverpool núna í sumar.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

