| Sf. Gutt
Ekkert varð af því að Liverpool spilaði sinn fyrsta leik undir stjórn Roy Hodgson í dag. Gríðarlegt úrfelli kom í veg fyrir að Liverpool og Al-Hilal gætu tekist á í Austurríki. Völlurinn var á floti og dómarinn úrskurðaði að hann væri ekki leikfær.
Roy Hodgson var búinn að velja fyrsta byrjunarlið á valdatíð sinni hjá Liverpool og var það svona skipað. Gulacsi, Degen, Darby, Ayala, Kelly, Leiva, Aquilani, Riera, Amoo, Dalla Valle og Ngog. Varamenn: Hansen, Spearing, Irwin, Shelvey, Ince, Eccleston og Guðlaugur Victor Pálsson. Ekki er að efa að þessir leikmenn hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með að ekki var hægt að spila í dag.
Roy Hodgson segir ekki hafa verið neinn möguleika á að spila leikinn. ,,Allir reyndu allt sem hægt var til að láta leikinn fara fram en það var bara ekki hægt að spila. Við vildum spila og það sama má segja um Al-Hilal en til að hægt sé að láta knattspyrnuleik fara fram þarf boltinn að geta rúllað um völlinn. Það gat hann ekki svo leikurinn gat ekki farið fram."
Næsti leikur, sem verður þá fyrsti æfingaleikur Liverpool í sumar, er fyrirhugaður á miðvikudaginn en þá mætir liðið svissneska liðinu Grasshoppers. Vonandi verður farið að þorna til svo að sá leikur geti farið fram.
Hér eru myndir frá Austurríki af Liverpoolfc.tv.
TIL BAKA
Fyrsta leik aflýst!
Ekkert varð af því að Liverpool spilaði sinn fyrsta leik undir stjórn Roy Hodgson í dag. Gríðarlegt úrfelli kom í veg fyrir að Liverpool og Al-Hilal gætu tekist á í Austurríki. Völlurinn var á floti og dómarinn úrskurðaði að hann væri ekki leikfær. Roy Hodgson var búinn að velja fyrsta byrjunarlið á valdatíð sinni hjá Liverpool og var það svona skipað. Gulacsi, Degen, Darby, Ayala, Kelly, Leiva, Aquilani, Riera, Amoo, Dalla Valle og Ngog. Varamenn: Hansen, Spearing, Irwin, Shelvey, Ince, Eccleston og Guðlaugur Victor Pálsson. Ekki er að efa að þessir leikmenn hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með að ekki var hægt að spila í dag.
Roy Hodgson segir ekki hafa verið neinn möguleika á að spila leikinn. ,,Allir reyndu allt sem hægt var til að láta leikinn fara fram en það var bara ekki hægt að spila. Við vildum spila og það sama má segja um Al-Hilal en til að hægt sé að láta knattspyrnuleik fara fram þarf boltinn að geta rúllað um völlinn. Það gat hann ekki svo leikurinn gat ekki farið fram."
Næsti leikur, sem verður þá fyrsti æfingaleikur Liverpool í sumar, er fyrirhugaður á miðvikudaginn en þá mætir liðið svissneska liðinu Grasshoppers. Vonandi verður farið að þorna til svo að sá leikur geti farið fram.
Hér eru myndir frá Austurríki af Liverpoolfc.tv.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

