| Ólafur Haukur Tómasson

Lucas vill vera um kyrrt

Brasilíumaðurinn Lucas Leiva er einn þeirra leikmanna sem hefur verið sterklega orðaður við för frá Liverpool. Ítalska liðið Palermo á að hafa lagt fram tilboð í leikmanninn sem hljóðaði upp á þrjár milljónir punda en líklega er það langt fyrir neðan það sem Liverpool metur leikmanninn á.

Lucas er einn reyndasti leikmaðurinn sem fór með liðinu í æfingabúðirnar í Sviss. Hann sagði í viðtali við opinberu heimasíðu Liverpool að hann hefði ekki í hyggju á að yfirgefa félagið.

"Í augnablikinu vitum við ekki hvað mun gerast. Ég er ánægður hjá Liverpool og hlakka til minnar fjórðu leiktíðar. Ég vona að ég verði hérna áfram. Ég er ánægður að spila fyrir Liverpool og bæta mig eins og ég gerði á síðustu leiktíð. Við vitum ekki of mikið. Það hefur verið mikið af vangaveltum en við munum sjá hvað gerist þegar allir leikmennirnir koma aftur.

Markmið mitt hjá Liverpool er að vera alltaf jákvæður við sjálfan mig. Ég er ekki hér til að vinna gagnrýnendurna á mitt band. Ég er hér til að sanna mig fyrir stjóranum og liðsfélögum mínum. Það er mikilvægasta málið. Ég veit ekki af hverju fólk gagnrýnir mig svona mikið en ég reyni bara að vera jákvæður og sterkur. Ég veit að ég átti góða leiktíð í fyrra og vona að sú næsta verði enn betri. Ég verð að halda mínu striki.

Ég myndi vilja spila hvern einasta leik á næstu leiktíð. Við vitum ekki hvernig liðið sem Roy hyggst byrja með verður en við verðum að sýna honum að við séum nógu góðir til að vera í liðinu. Ég er vongóður um að við munum eiga betri leiktíð. Þegar mikið er um breytingar þá kemur nýr andblær og ég held að við getum gert betur. Við munum gera betur."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan