| Sf. Gutt

Fernando Torres er ekki til sölu!

Fernando Torres er ekki til sölu og það sama gildir um Steven Gerrard eftir því sem Roy Hodgson framkvæmdastjóri Liverpool segir. Hann er búinn að ræða við Heimsmeistarann sjálfan.
 
Roy Hodgson gaf sér tíma til að fljúga til Spánar í fyrradag til fundar við Fernando Torres og var erindið að ræða um framtíð hans hjá Liverpool. Roy segir viðræður þeirra hafa verið góðar. Þegar Roy kom til baka úr ferðinni hafði hann þetta að segja.

"Ég er búinn að hitta Fernando. Mér fannst hann vera mjög viðkunnalegur og við áttum góðar viðræður. Frá okkar sjónarhóli séð þá er hann leikmaður Liverpool og við viljum að hann verði áfram leikmaður Liverpool. Hann er ekki til sölu og við viljum ekki fá nein tilboð í hann. Við viljum einfaldlega halda honum hjá okkur."
 
"Samtal okkar var stutt vegna þess að ég þurfti af fara til að komast í æfingabúðirnar í Sviss. Við ræddum um knattspyrnu, Heimsmeistarakeppnina, meiðsli hans og ég sagði honum að ég hlakki mikið til að vinna með honum."

Christian Purslow, forstjóri Liverpool, fór með Roy til að hitta Fernando. Samtal þeirra hefur líklega snúist um kaup og kjör en Roy sagðist bara hafa rætt um knattspyrnu við sóknarmanninn snjalla.

Miðað við þessar viðræður Roy Hodgson og Fernando og eins viðræður hans við Steven Gerrard þá má kannski segja að líkurnar fyrir því að þeir félagar verði áfram hjá Liverpool hafi aukist eitthvað.

Það jók líka mörgum stuðningsmönnum Liverpool bjartsýni þegar þeir sáu myndir af Fernando Torres með Liverpool trefil. Hann lét mynda sig með heimsmeistarastyttuna og Liverpool trefil eftir úrslitaleikinn við Hollendinga. Stuðningsmönnum Liverpool fannst þessi mynd vita á gott.


 
Fjölmiðlar hafa margir núna í sumar fjallað ótt og títt um þá Steven Gerrard og Fernando Torres. Þeir hafa jafnan í þessum fréttum gert því skóna að þeir félagar hafi hug á að fara frá Liverpool. Steven mun, samkvæmt sögusögnum þessum, vera í sigtinu hjá Real Madrid og forráðamenn Chelsea eiga að hafa mikinn hug á að fá Fernando Torres í sínar raðir. Hvað úr verður kemur í ljós en við vonum það besta!    

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan