L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
17.07.2010 11:07
|
Sf. Gutt
Fyrsti leikur í dag
Fyrsti æfingaleikur Liverpool, fyrir komandi keppnistímabil, fer fram í Austurríki í dag. Liðið á erfiðan leik fyrir höndum. Mótherjinn er Al-Hilal og er ríkjandi landsmeistari í Saudi Arabíu. Þeir eru með sína bestu menn en liðshópur Liverpool er þunnskipaður enda eru flestir þeir leikmenn sem spiluðu í Heimsmeistarakeppninni ennþá í sumarfríi.
Roy Hodgson stýrir Liverpool í fyrsta sinn og hann segist ekki hlakka mjög mikið til leiksins! Mörgum þykir það kannski skrýtin afstaða hjá Roy en hann segir ástæðuna þá að hann hafi ekki þá leikmenn sem taks sem hann vildi helst. Á hinn bóginn vonar hann að strákarnir sem hann ætlar að tefla fram sýni hvað í þá er spunnið.
,,Allir æfingaleikir eru til að auka úthaldið en í þessum leik fá strákar á borð við Irwin, Ayala, Kelly, Spearing, Shelvey, Dalle Valle, Eccleston, Amoo og Ince úr varaliðinu tækifæri. Þetta er aðalliðsleikur og þar með spila þeir í aðalliðinu. Það er þeirra mál að sýna hvað í þeim býr. Það er eins gott að þeir leggji hart að sér og hreyfi sig því leikmennirnir sem þeir mæta eru ekki neinir aular. Leikurinn hefði ekki verið auðveldur þó við hefðum Torres, Mascherano, Gerrard og alla hina."
Roy Hodgson sagði á blaðamannafundinum, sem þessi orð og fleiri féllu, að þeir Sotirios Kyrgiakos og Milan Jovanovic komi ekki til með að spila í dag. Nýliðinn Jonjo Shelvey, sem kom frá Charlton í vor, verður örugglega í liðinu og verður fróðlegt að sjá hann spreyta sig. Líklega kemur landi okkar Guðlaugur Victor Pálsson við sögu. Það yrði strangt til tekið fyrsti leikur hans í aðalliði Liverpool!
Leikurinn hefst klukkan fimm seinni partinn í dag að íslenskum tíma. Greint verður frá úrslitum leiksins þegar honum lýkur.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikskýrslu
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir