| Ólafur Haukur Tómasson

Roy kveður niður orðróm um Loic Remy

Orðrómar um að franski sóknarmaðurinn Loic Remy væri á leið í læknisskoðun hjá Liverpool eftir að Liverpool og Nice, félag hans í frönsku deildinni, höfðu komist að samkomulagi um kaupverð á leikmanninum sem talið var nema allt að tólf og hálfri milljón punda gengu um netið í gær.

"Liverpool er goðsögulegt félag. Ég er mjög spenntur yfir þeirri tilhugsun að spila þar. Það hefur ótrúlegan leikvang og frábæra stuðningsmenn". Þetta er bein tilvitnun í Loic Remy í franska blaðinu Nice Matin í gær.

Roy Hodgson var fljótur að bregðast við þessum orðrómi og gaf í skyn að leikmaðurinn væri ekki jafn nálægt því að ganga til liðs við Liverpool og sögurnar vildu meina. Félagið hefur hins vegar áhuga á leikmanninum en Roy segist ekki þekkja nóg til hans til að geta keypt hann.

"Hann er leikmaður sem var nefndur við mig af njósnurum okkar og leikmaður sem félagið fylgdist með áður en ég kom. Hann er leikmaður sem ég þekki lítið til. Ef ég á að vera áhugasamur um leikmann þá verð ég að hafa séð hann spila, kynna mér hann og dæma en það hef ég ekki getað gert." sagði Roy Hodgson.

Það er því spurning hvort að leikmaðurinn sé nokkuð á leið til Liverpool, allavega ekki jafn fljótt og nokkrir fjölmiðlar vilja meina. Roy hins vegar sagði aldrei að leikmaðurinn væri ekki á leið til félagsins en þar sem að ákveðið var að fara í samningaviðræður við önnur lið varðandi sölur á mönnum eins og Emiliano Insua og Lucas Leiva þá er aldrei að vita nema stjórnarmenn Liverpool hafi ákveðið að kaupa leikmanninn. Þetta mun líklega koma í ljós á næstu dögum.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan